Landbunadur.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst
 
Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
 
 
Bændasamtökin
Félagssvið
Ráðgjafarsvið
Útgáfa og kynning
Tölvudeild
 
 
Landbúnaðarnetföng
 
 
Búnaðarsambönd
Búgreinasambönd
 
Innskráning
 
Vefpóstur BÍ
 
Vefpóstur BSB
 

Um landbúnaðarvefinn

Nokkrar stofnanir og samtök í íslenskum landbúnaði reka sameiginlegan upplýsingavef sem hóf göngu sína í upphafi árs 2002. Vefslóðin er www.landbunadur.is. Markmiðið með samstarfinu að auðvelda bændum, starfsmönnum landbúnaðarstofnana og raunar öllum almenningi að nálgast upplýsingar um íslenskan landbúnað. Á vefsíðunni er lögð sérstök áhersla á þjónustu við fjölmiðla, en allir sem taka þátt í vefnum leggja til fréttir sem birtast á honum. Þar er einnig sameiginleg dagbók og gagnabanki með öllu því efni sem aðstandendur vefsins hafa samið og gefið út. Að landbúnaðarvefnum nýja standa: Aðfangaeftirlitið, Bændasamtök Íslands, Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, Lífeyrissjóður bænda, Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, Yfirkjötmat ríkisins og Landgræðsla ríksins.

Sameiginlegi vefurinn er hugsaður sem einskonar anddyri eða yfirsíða, þaðan sem hægt verður að komast í eftirfarandi flokka: Greinasafn, Leit, Fréttir, Dagbók, Nám og námskeið, Rannsóknir, Tenglar, Starfsmenn, Fundargerðir. Einnig er hægt að komast á sérvefi hverrar stofnunar af forsíðu sameiginlega vefsins, senda póst á vefstjóra og sjá kort af vefnum öllum (Site Map).

Vefur Bændasamtaka Íslands er á slóðinni www.bondi.is. Hann er tengdur hinum sameiginlega landbúnaðarvef á þann hátt að þegar greinar eru settar í Greinasafn þá fara þær rakleiðis í sameiginlegan gagnagrunn sem allir samstarfsaðilar standa að. Starfsfólk Bændasamtakanna er einnig sýnilegt á sameiginlega vefnum auk þess sem auglýsingar, fréttir og dagbókarviðburðir sem settir eru inn á sérvef BÍ fara einnig á hinn sameiginlega vef. Nokkrir flokkar á sérvef BÍ eru ekki á sameiginlega vefnum s.s. útgefið efni, tölur, innra starf Bændasamtakanna o.s.frv. Hægt er að senda athugasemdir vegna vefs BÍ til vefstjórans og er netfangið bbl@bondi.is

 


 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Athyglisverðir tenglar

dkBúbót handbók

Eyðublöð

Samningar

Forrit fyrir bændur

Greiðslumark

Lög og reglugerðir

Tölur og gjaldskrár

Útgefið efni

Þéttbýlið og sveitin