|
|
Dagbókafærslur
Mikilvægur hluti fjárhagsins er innskráning á færslum (fylgiskjölum). Við hönnun á dkBúbót hefur mikil áhersla verið lögð á að gera þessa vinnslu sem þægilegasta til að auðvelda fyrir innslætti. Við veljum vinnsluna Dagbók frá aðalvalmyndinni. Þá birtist tafla sem sýnir þær dagbækur sem eru í vinnslu. Ef engin dagbók er óuppfærð þá birtist tóm tafla eins og eftirfarandi mynd sýnir.

Ef ýtt er á Insert takkann á lyklaborðinu eða smellt með mús á hnappinn [INS Ný ] þá stofnast ný dagbók. Notandi gefur henni síðan heiti sem lýsir innihaldi dagbókarinnar og velur viðeigandi bókhaldstímabil. Dagbókinni má einnig gefa allt að 4 stafa auðkenni. Þetta auðkenni gæti t.d. verið B1 fyrir blað 1. Að þessu loknu má byrja að skrá inn færslur. Almennt er slegin inn dagsetning, texti, fylgiskjal, tegund, deild (búgrein), bókhaldslykill, tilvísun, upphæð, magn og fjöldi. Tegund er að öllu jöfnu "Fjárhagur" sem þýðir að færslan færist eingöngu í fjárhaginn. Velja má "Skuldunautar" og "Lánardrottnar" sem tegund ef færa á í þau undirkerfi.
Þegar notandi telur sig vera búinn að færa í dagbókina þær færslur sem hann ætlar að færa í það skiptið þá ýtir hann á Esc takkann eða smellir á [ESC Hætta] hnappinn til að fara úr innsláttarham. Hann smellir á hnappinn [F5 Valmynd] eða ýtir á F5 takkann á lyklaborðinu til að fá upp valmynd og í henni velur hann Yfirfara skráningu. Kerfið fer nú yfir allar færslur sem búið er að skrá inn og birtir villur, ábendingar og athugasemdir. Ef engar villur koma fram við yfirferðina má prenta út dagbókina með því að velja Prenta skráningu úr valmyndinni og að lokum er valið Uppfæra skráningu. |
|
|