|
|
Starfsmenntasjóður bænda - SBÍ
Starfsmenntasjóður bænda er tekinn til starfa. Markmið hans er að efla frumkvæði bænda til að afla sér endur- og starfsmenntunar í þeim tilgangi að styrkja færni sína í að takast á við flóknari viðföng í búrekstri.
Viljum við hvetja bændur til þess að kynna sér reglur sjóðsins – skipulag sjóðsins, fyrirkomulag styrkveitinga og hvernig háttað er rétti til framlaga vegna starfs- og endurmenntunar. Umsóknareyðublöð til rafrænnar útfyllingar umsókna eru tilbúin hér að neðan Fyrir þá sem ekki hafa netaðgengi verða umsóknareyðublöð vegna styrkumsókna ennfremur aðgengileg á skrifstofum búnaðarsambandanna.
Ásdís Kristinsdóttir starfsmaður á skrifstofu BÍ mun annast daglega umsjón með sjóðnum, taka við umsóknum, afgreiða, - svo og að veita upplýsingar um sjóðinn. Síminn hjá Ásdísi er 563 0300 / 563 0337. Einnig er unnt að hafa samband við hana gegnum tölvupóst starfsmennt@bondi.is
Smellið hér til að sækja um
Reglur starfsmenntasjóðs bænda
|
|
|