Staðarval
Þættir sem æskilegt er að hafa í huga varðandi staðsetningu bygginga.
- Eignaréttur, þ.e.a.s. hvort um er að ræða ríkisjarðir, því sækja þarf um leyfi fyrir slíkum framkvæmdum
- Fyrirhöguð starfsemi í húsinu
- Umfang starfseminnar
- Byggðastefna, framleiðsla í héraðinu og nánd við markað
- Jarðvegsgerð á grunnstæði
- Tegund húsgrunns
- Lagnir s.s. vatn, rafmagn og frárennsli
- Aðgengi véla, m.t.t. fóðurflutninga og haugtæmingar
- Aðgengi fyrir þjónustu, s.s. sláturhúsa- og mjólkurbíls
- Aðgengi fyrir skepnur og nálægð við beitarhaga
- Aðgengi fyrir ábúendur, s.s. fjarlægð frá íbúðarhúsi
- Fjarlægð frá öðrum húsum s.s. íbúðarhúsi, m.t.t. lyktarmengunar og ríkjandi vindáttar
- Landslag, m.t.t. fegurðar og að bygging falli inn í landslagið og sé í samræmi við aðrar byggingar á staðnum
- Veðurfar, s.s. snjóalög, áveður, vindar, reynsla staðarbúa
- Umhverfi
- Heildarsvipur bæjar, s.s staðsetning og lögun núverandi bygginga
- Smithætta milli bygginga, sérstaklega m.t.t. svína og alifugla
- Stækkunarmöguleikar
- Kröfur fjármögnunaraðila
- Lög og reglugerðir
|