Landbunadur.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst
 
 
Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
 
Byggingarþjónustan
Upplýsingar
Undirbúningur
Staðarval
Lög og reglugerðir
Kostnaðaráætlanir
Fjármögnun
Umsóknir og leyfi
Fjós
Fjárhús
Hesthús
Loftræstingar
Innréttingar
Byggingatækni
 
 
Bændasamtökin
Forrit fyrir bændur
Greiðslumark
Tölur
Útgefið efni
Þéttbýlið og sveitin
Lög og reglugerðir
Eyðublöð
Landbúnaðarnetföng
 
Búnaðarsambönd
Búgreinasambönd
 
Innskráning
 
Vefpóstur BÍ
 
Vefpóstur BSB
 

Undirbúningur byggingaframkvæmda

Mjög mikilvægt er að vanda vel allan undirbúning byggingaframkvæmda og taka til þess nægan tíma. Góð undirbúningsvinna skilar sér í lægri byggingarkostnaði.

Undirbúningi byggingarframkvæmdanna má skipta í eftirfarandi kafla:

1. Hugmyndastig.
Á þessu stigi þarf að íhuga m.a. eftirfarandi atriði:
  • Fyrirhugaða starfsemi
  • Umfang starfseminnar
  • Þörf fyrir nýbyggingu / viðbyggingu
  • Notkunarmöguleika eldri bygginga á staðnum
  • Stærð nýbyggingar / viðbyggingar
  • Staðarval
  • Fjármögnunarmöguleika
  • Möguleika á eigin vinnuframlagi
  • Byggingatímabil sem er til umráða

Þegar hugmyndir hafa fæðst leitar bóndi til sérfræðinga s.s. héraðsráðunautar og hönnuðar. Við ráðunautinn ræðir hann um framleiðslumálin og búrekstrarleg atriði. Hjá hönnuði fær hann ýmsar upplýsingar og byggingatæknileg ráð. Í framhaldi af þessu er afar gagnlegt fyrir hann að fara og skoða sambærilegar byggingar, e.t.v. bæði innanlands og erlendis.

Að því loknu getur bóndi e.t.v. rissað sínar hugmyndir upp á blað.

2. Tillögustig.
  • Bóndi hefur samband við byggingahönnuð.
  • Hönnuður heimsækir bónda ef því verður við komið og skoðar aðstæður með honum.
  • Hönnuður gerir tillöguteikningu (ar)
  • Bóndi skoðar tillögur og gerir athugasemdir
  • Nýjar tillögur gerðar
  • Tillaga samþykkt
  • Tekin ákvörðun um meginlínur varðandi byggingarefni

3. Verkefnastig.
  • Hönnuður áætlar gróflega byggingarkostnað á grundvelli tillöguteikningar
  • Ráðunautur gerir búrekstraráætlun til 5 ára
  • Ráðunautur aðstoðar við að undirbúa lánsumsókn til Lánasjóðs landbúnaðarins
  • Bóndi sendir lánsumsókn til L. l. með öllum tilskyldum gögnum þ.á.m. tillöguteikningunni
  • Lánsleyfi veitt
  • Athugað með byrjunarfjármagn til framkvæmdanna, s.s. til efniskaupa. Fyrirgreiðsla hjá banka og byggingarefnissölum
  • Hönnuður fullvinnur bygginganefndarteikningar
  • Bóndi sækir um byggingarleyfi
  • Byggingarleyfi veitt
  • Hönnuður vinnur burðarvirkisteikningar og nauðsynlegar sérteikningar

4. Framkvæmdastig.
  • Bóndi leitar tilboða í byggingarefni, innréttingar og tæknibúnað í samræmi við teikningar
  • Bóndi leitar e.t.v. tilboða í verkþætti byggingarinnar á grundvelli útboðslýsingar
  • Mat á tilboðum ( með aðstoð hönnuða / ráðgjafa )
  • Bóndi ræður byggingarstjóra til verksins á grundvelli tilboðs eða tímavinnu
  • Gengið frá samningum um kaup á byggingarefni, innréttingum og tæknibúnaði og afhendingartími ákveðinn
  • Byggingastjóri mælir út fyrir húsinu í samráði við byggingarfulltrúa
  • Framkvæmdir hefjast
 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Landbúnaðarmál

Alifuglarækt

Búrekstur/Hagfræði

Bútækni

Byggingarþjónusta

Garðyrkja/Ylrækt

Hlunnindi

Hrossarækt

Jarðrækt/Fóðuröflun

Lífrænn landbúnaður

Loðdýrarækt

Nautgriparækt

Sauðfjárrækt

Svínarækt

Annað


Athyglisverðir tenglar

dkBúbót handbók

Eyðublöð

Samningar

Forrit fyrir bændur

Greiðslumark

Lög og reglugerðir

Tölur og gjaldskrár

Útgefið efni

Þéttbýlið og sveitin