Landbunadur.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst
 
 
Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
 
Byggingarþjónustan
Upplýsingar
Undirbúningur
Staðarval
Lög og reglugerðir
Kostnaðaráætlanir
Fjármögnun
Umsóknir og leyfi
Fjós
Fjárhús
Hesthús
Loftræstingar
Innréttingar
Byggingatækni
 
 
Bændasamtökin
Forrit fyrir bændur
Greiðslumark
Tölur
Útgefið efni
Þéttbýlið og sveitin
Lög og reglugerðir
Eyðublöð
Landbúnaðarnetföng
 
Búnaðarsambönd
Búgreinasambönd
 
Innskráning
 
Vefpóstur BÍ
 
Vefpóstur BSB
 

Vatn í legubásafjósum

Nægilegt aðgengi að góðu vatni er kúnum nauðsynlegt til þess að þær haldi góðri heilsu og skili hámarksafurðum. Vatn í legubásafjósum er yfirleitt haft í opnum trogum þar sem nokkrar kýr geta drukkið samtímis. Vatnshæðinni í troginu er stjórnað með flotholti.
Vatnstrogin eru til af mismunandi stærðum og gerðum. Þau eru yfirleitt höfð yfir flórum eða þvergöngum við enda legubásaraða til þess að vatn sullist ekki í legubása eða á fóðurgang. Mikilvægt er að trogin séu þannig staðsett að þau hindri ekki eðlilega umferð kúnna þannig að kýr geti auðveldlega komist eftir ganginum framhjá þeim kúm sem eru að drekka. Breidd þverganga með vatnstrogi þarf helst að vera u.þ.b. 3,0 metrar. Vatnstrogin mega heldur ekki vera of nálægt kraftfóðurbásum því að þá er hætt við að kýrnar fari beint frá vatnstroginu í kraftfóðurbásinn, blautar á grönum, og jata kraftfóðurbássins óhreinkast. Mælt er með því að þarna á milli séu a.m.k. 5 – 6 metrar.



Mynd 1. Kýrin stendur með framfæturna uppi á steyptu þrepi við vatnstrog í legubásafjósinu að Lambastöðum, Borgarbyggð.Trogið er við enda á tvöfaldri legubásaröð, einn bás tekinn af röðinni.

Best er að hafa fleiri en eitt vatnstrog í fjósinu þannig að kýrnar geti valið á milli drykkjarstaða. Samkvæmt aðbúnaðarreglugerð þarf að hafa minnst 8 cm lengd á vatnstrogi fyrir hverja kú í fjósinu (hámark 12 kýr á hvern lengdarmetra vatnstrogs). Vatnsleiðslan að troginu þarf að vera nægilega sver þannig að tryggt sé að alltaf sé nóg vatn fyrir hendi. Annars drekka kýrnar hreinlega ekki eins mikið og þær þurfa. Flutningsgetan þarf að vera a.m.k. 15 - 20 l/mín.
Nauðsynlegt er að hreinsa trogin af og til. Veltitrog sem hægt er að hvolfa í festirammanum er þægilegt að hreinsa. Í föstu trogi þarf að vera stór botntappi.

Til þess að koma í veg fyrir að kýrnar skíti upp í vatnstrogið eru til tvær aðferðir. Annars vegar að hafa rör 20 cm framan við brúnina á troginu; hins vegar að steypa þrep ofan á gólfið undir troginu. Þrepið á að ná u.þ.b. 30 cm fram fyrir trogið og hæð þess skal vera u.þ.b. 20 cm ( sjá mynd 2 ). Hæfilegt er að efri brún trogsins sé 70 – 80 cm yfir gangveginum eins og fram kemur á mynd 2.


Mynd 2. Snið í vatnstrog í legubásafjósi


Til greina getur komið að vera með eitt til tvö sjálfbrynningartæki á hentugum stað í fjósinu til viðbótar við vatnstrog. Ætla má eitt sjálfbrynningartæki fyrir 10 gripi í lausagöngu. Vatnslögn að slíku tæki þarf að geta flutt 10 l/mín. Best er að nota frekar stórar skálar.

Í “köldum” fjósum, þ.e.a.s. óeinangruðum byggingum, er nauðsynlegt að frostverja vatnsleiðslur og vatnstrog. Þetta má gera með því að einangra vatnslagnir og hafa hringrásardælu á vatnskerfinu. Að auki má velgja vatnið með forhitara eða leggja hitaþráð í lögnina og e.t.v. einnig í vatnstrogið.


Höfundur: Magnús Sigsteinsson, Bændasamtök Íslands, Bændahöllinni við Hagatorg, Reykjavík


Heimildir:
Hus for storfe, norske anbefalinger; Helsetjenesten for storfe, 2003
Indretning af stalde til kvæg, danske anbefalinger; Landbrugets Rådgivningscenter, 2001
Reglugerð um aðbúnað nautgripa og eftirlit með framleiðslu mjólkur og annara afurða þeirra, nr 438/2002

Grein á pdf formi


 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Landbúnaðarmál

Alifuglarækt

Búrekstur/Hagfræði

Bútækni

Byggingarþjónusta

Garðyrkja/Ylrækt

Hlunnindi

Hrossarækt

Jarðrækt/Fóðuröflun

Lífrænn landbúnaður

Loðdýrarækt

Nautgriparækt

Sauðfjárrækt

Svínarækt

Annað


Athyglisverðir tenglar

dkBúbót handbók

Eyðublöð

Samningar

Forrit fyrir bændur

Greiðslumark

Lög og reglugerðir

Tölur og gjaldskrár

Útgefið efni

Þéttbýlið og sveitin