Landbunadur.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst
 
 
Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
 
 
Bændasamtökin
Félagssvið
Ráðgjafarsvið
Útgáfa og kynning
- Útgefið efni
Bændablaðið
Freyr
Handbók bænda
Hagtölur landb.
Icelandic Food
Litaveggspjöld
Úrvalsfatnaður
Lógó
Margmiðlunardiskur
Vefurinn
- Þéttbýlið og sveitin
Myndlist á Búnaðarþingi
Dagur með bónda
Fræðsluefni
Sveitaheimsóknir barna
Vistforeldrar
Ferðaþjónustubæir
Fjár- og stóðréttir
Tölvudeild
 
 
Landbúnaðarnetföng
 
Búnaðarsambönd
Búgreinasambönd
 
Innskráning
 
Vefpóstur BÍ
 
Vefpóstur BSB
 
 


Dagur með bónda

Um verkefnið

Dagur með bónda hófst árið 1999 hjá Bændasamtökum Íslands og hefur gengið óslitið síðan. Það fjallar um hvernig bóndi getur brúað bil á milli þéttbýlis og dreifbýlis, á milli framleiðenda og neytenda. Það gerir hann með því að fara í skóla í þéttbýlinu og fræða nemendur og kennara um landbúnað og líf og störf í sveitinni.

Þegar bóndi kemur í heimsókn

Dagur með bónda er í raun skipulögð dagskrá með bónda í fjórar kennslustundir samfleytt. Fyrir heimsóknina hafa nemendur undirbúið sig heima með því að fylla út ættartré sem þau koma með og leggja fyrir bóndann til gamans og umræðna um þróun mannlífs og byggðar hér á landi. Bóndinn kemur sjálfur með og sýnir myndband um búið sitt og störfin í sveitinni, ásamt því að sýna og segja frá efnum og áhöldum sem nauðsynleg eru við framleiðslu á landbúnaðarvörum.

Nemendur kanna ýmis viðfangsefni í samvinnu við bóndann, svo sem ,,Hvað er í krukkunni” en það er vinsælt verkefni og felst í því að nota öll skilningarvit, augu, nef og bragðskyn til að kanna innihaldið í krukkunum, sem eru ýmis notkunarefni í landbúnaði. Fjörlegar umræður, spurningar og svör eru frjálsar og ráðast af undirbúningi nemenda og þátttöku og stjórnun kennara.
Hverjir taka þátt

Dagur með bónda stendur til boða í 7.bekk grunnskóla. Nú stendur yfir fimm ára samkomulag BÍ til ársins 2010 við 41 skóla á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Dalvík. Í því felst að bóndi kemur einu sinni á vetri í hvern bekk í árganginum og geta skólarnir ákveðið hvenær á skólaárinu bóndinn kemur. Þessir skólar eru með samkomulag við Bændasamtökin:

Austurbæjarskóli 101 Reykjavík
Álftanesskóli 225 Álftanes
Ártúnsskóli 110 Reykjavík
Áslandsskóli 221 Hafnarfjörður
Breiðagerðisskóli 108 Reykjavík
Breiðholtsskóli 109 Reykjavík
Brekkuskóli 600 Akureyri
Dalvíkurskóli 621 Dalvík
Digranesskóli 200 Kópavogur
Engidalsskóli 220 Hafnarfjörður
Engjaskóli 112 Reykjavík
Foldaskóli 112 Reykjavík
Fossvogsskóli 108 Reykjavík
Giljaskóli 603 Akureyri
Glerárskóli 603 Akureyri
Háteigsskóli 105 Reykjavík
Hjallaskóli 200 Kópavogur
Hlíðaskóli 105 Reykjavík
Hólabrekkuskóli 111 Reykjavík
Ingunnarskóli 113 Reykjavík
Klébergsskóli 116 Reykjavík
Korpuskóli 112 Reykjavík
Kópavogsskóli 200 Kópavogur
Langholtsskóli 104 Reykjavík
Lágafellskóli 270 Mosfellsbær
Lindaskóli 201 Kópavogur
Lundarskóli 600 Akureyri
Melaskóli 107 Reykjavík
Oddeyrarskóli 600 Akureyri
Rimaskóli 112 Reykjavík
Seljaskóli 109 Reykjavík
Setbergsskóli 221 Hafnarfjörður
Síðuskóli 603 Akureyri
Snælandsskóli 200 Kópavogur
Valhúsaskóli 170 Seltjarnarnes
Varmárskóli 270 Mosfellsbær
Víðistaðaskóli 220 Hafnarfjörður
Vogaskóli 104 Reykjavík
Ölduselsskóli 109 Reykjavík


 

 Leit á vef
 
Sameiginlegur vefur
 

Athyglisverðir tenglar

dkBúbót handbók

Eyðublöð

Samningar

Forrit fyrir bændur

Greiðslumark

Lög og reglugerðir

Tölur og gjaldskrár

Útgefið efni

Þéttbýlið og sveitin