|
|
Gömul deiliblöð
Þær teikningar sem hér eru voru gerðar á árabilinu 1970-1980. Sumt er í fullu gildi enn í dag en annað verður að teljast barn síns tíma. En allar teikningarnar bera gott vitni um vandaða og metnaðarfullar byggingarleiðbeiningar er lúta að fjárhúsum og búnaði þeim tengdum.
Aðstaða um sauðburð
Útihólf og skipulag á sauðburði. Þarna má sjá hvernig hægt er að smíða gjafaaðstöðu, fóðurbætisrennur, lambavar og grindur. Í stað sjálfgjafa kæmi kannski gjafagrind í dag.
Baðþró
Steypt baðþró í fóðurgang, eitthvað sem ekki er smíðað lengur og hvarf þegar böðun var hætt, en sést enn víða í fjárhúsum.
Burst úr timbri og báruplasti
Teikning af burst á þriggja og fjögurra garða húsi með báruplasti eins og var talsvert algengt að byggja. Sérstaklega ofan á steypta veggi. Skýrar sérteikningar með einföldum og snyrtilegum frágangi sem eru enn í fullu gildi þar sem við á.
Fastar milligerðir (gerð 1)
Teikningar af milligerðum með hliðum, bæði þili á milli króa sem og inn á fóðurgang og innrekstrargang. Helst vill maður núna hafa milligerðin heilklædd til að minnka líkur á að hrútar séu að berja þau. Einnig að hlið þar sem fé er rekið um, til dæmis inn í krærnar, séu að lágmarki 150 cm. En annars er hér sýndur vandaður og góður frágangur.
Fastar milligerðir (gerð 2)
Teikningar af milligerðum með hliðum á mili króa sem og inn á fóðurgang og innrekstrargang. Hér eru sýndar brynningarennur í milliþili úr 90 mm plastpípu. Hér gildir það sama og um milligerði 1 að nú vill maður hafa milligerðin heilklædd á milli króa og hliðin breiðari. Eins er það nokkur ókostur að ekki er hægt að ganga í gegnum hliðin sem eru undir brynningarennuna. En annars er frágangurinn vandaður og til fyrirmyndar.
Flekalokun fyrir vélfæran kjallara
Einfaldar, ódýrar og ágætlega vandaðar hurðir sem auðvelt er að smíða með traustri lokun. Hurðir sem henta í raun allstaðar þar sem ekki þarf að opna oft. Stærðarmál hurðargata verða að taka mið af þeim vélum sem eiga að aka um þær.
Garði
Garði án botns sem hægt er að setja ofan á steypt gólf og grindargólf. Gæti verið sérstaklega hentugt þar sem ætlunin er að koma upp görðum til dæmis á sauðburði. Hver hliðareining er 240 x 80 cm. Slæðigrindur með læsingum eru sýndar.
Garði með afdrepi fyrir lömb
Garði með lambavari undir. Þennan garða má sjá víða í fjárhúsum. Einföld og góð smíði. Hér er hann sýndur með slæðigrindum. Með því að hækka jötustokkinn eða hafa garðann 20 cm djúpan í stað 15 cm eins og á teikningunni má oft koma í veg fyrir slæðing. Sumir vilja grynnka lambavarið eða skipta því ekki undir miðjum garða heldur með tveim borðum. Þannig er auðveldara að sjá veik lömb sem skríða undir garðann. Í botninum er 12mm krossviður í það þynnsta. Í stað hans má nota 25 x 150 mótaborð og klæða ofan með 12 mm vatnslímdri spónaplötu.
Grindargólf á hengslum
Haganlega úbúið grindagólf á lömum þar sem þarf að lyfta upp gólfum til að moka út. Vandaður og traustur frágangur. Nokkuð flókin smíði en þegar vel tekst upp er þetta ódýr og þægileg lausn á haughúsi.
Hurð i fjárhús með grunnum kjallara
Haganleg og vönduð smíði á samsetum hurðum með göngufleka. Svona rampur telst varla skemmtileg gönguleið og slysahætta stafar af honum og því er rétt að leita eftir öðrum lausnum á gönguleið.
Klafastía
Stía sérstaklega útbúin þannig að ærin sé bundin og sjái ekki lömbin, ætluð til að nota við undirvenjur. Gert er ráð fyrir jötu en ekki brynningu.
Rimlagólf úr járnbentri steinsteypu
Smíðateikning af steyptum bitum, sérstaklega mikilvægt er að vanda alla vinnu því hér er fjárfest til langs tíma.
Skýli á sauðburði
Einfalt skýli með segldúk sem þak.
Steyptur garði í taðhúsi
Þess tíma háttur, en samt vandaður frágangur. Á teikningu vantar þrep við garðann þegar ekkert tað er í krónni en þá er nokkuð hátt upp í jötustokkinn eða 60-70 cm. Garðastokkurinn má ekki vera lægri.
Stíumilligerðir um sauðburð (gerð 1)
Hér er mjög haganlegt stíukerfi til að nota á sauðburði. Bæði einstaklingstíur sem og fjölbýlisstíur. Gert er ráð fyrir auðveldum færslum þar á milli og brynningu í hverri stíu. Óhætt er að mæla með þessari úrfærslu. Með því að skásetja grindurnar í einstaklingsstíunum fæst aukinn plássnýting. Hér vantar þó að gera ráð fyrir brynningu lamba eftir fyrsta sólarhring.
Stíumilligerðir um sauðburð (gerð 2)
Annarskonar milligerðir, hér er ekki gert ráð fyrir gangi við þilið og því eru færslur á milli stía ekki eins auðveldar. Hér þarf að opna allar stíur til að færa til lambærnar. En annars er þetta einfaldur og vandaður frágangur.
Strompur á fjárhús
Vandaður frágangur á strompi á fjárhúsi. Stærðartaflan sem fylgir gerir ráð fyrir of litlum opum og er ekki í samræmi við nútíma ráðleggingar. Loftræsting er einhver mikilvægasti þátturinn í góðum fjárhúsum og skulu menn því vanda til hennar.
Þversnið í fóðurgang
Mismunandi þversnið í fóðurgang í fjárhúsum. Mismunurinn liggur í hæðarsetningu fóðurgangs og króargólfs. Nú er ráðlagt að horfa fyrst og fremst á sömu hæð á fóðurgang og króargólfi eða garðabotn. Best er alltaf að geta unnið á gólfi án mishæða og þröskulda.
|
|
|