Landbunadur.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst
 
 
Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
 
 
Bændasamtökin
Félagssvið
Ráðgjafarsvið
Útgáfa og kynning
- Útgefið efni
Bændablaðið
Freyr
Handbók bænda
Hagtölur landb.
Icelandic Food
Litaveggspjöld
Úrvalsfatnaður
Lógó
Margmiðlunardiskur
Vefurinn
- Þéttbýlið og sveitin
Myndlist á Búnaðarþingi
Dagur með bónda
Fræðsluefni
Sveitaheimsóknir barna
Vistforeldrar
Ferðaþjónustubæir
Fjár- og stóðréttir
Tölvudeild
 
 
Landbúnaðarnetföng
 
Búnaðarsambönd
Búgreinasambönd
 
Innskráning
 
Vefpóstur BÍ
 
Vefpóstur BSB
 
 

Fróðleiksfúsi í sveitinni
- margmiðlunardiskur um íslenskan landbúnað
Fróðleiksfúsi í sveitinni er heiti margmiðlunardisks um íslenskan landbúnað sem Bændasamtök Íslands færðu Námsgagnastofnun að gjöf til fræðslu og kennslu í grunnskólum landsins í september árið 2001. Diskurinn gefur yfirgripsmikla sýn á íslenskan landbúnað og eru upplýsingarnar sem þar eru vistaðar settar fram á aðgengilegan hátt, með lifandi myndum, ljósmyndum, skýringamyndum, texta o.fl. Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, tók á móti disknum fyrir hönd grunnskólans.
Á síðasta ári fengu Bændasamtökin Jóhann Ólaf Halldórsson á Akureyri til að stýra uppsetningu báss Bændasamtaka Íslands á sýningunni Bú-2000 og í tengslum við það verkefni varð til kynningarefni í tölvum um íslenskan landbúnað. Vakti efnið mikla athygli sýningargesta en um tæknilega vinnslu þess sá Samver á Akureyri. Að sýningunni lokinni var ákveðið að vinna efnið frekar og fólu Bændasamtökin almannatengslafyrirtækinu Athygli ehf. á Akureyri og myndbanda- og kvikmyndagerðinni Samveri hf. að byggja ofan á fyrirliggjandi grunn, gera verkefnið víðtækara og laga það að kennslu í skólum. Jóhann Ólafur og Óskar Þór Halldórssynir hjá Athygli ehf. á Akureyri, í samvinnu við Bændasamtökin, lögðu meginlínur um efni disksins og önnuðust alla textavinnslu og ritstjórn. Samver hf. á Akureyri sá um tæknilega útfærslu en vegna vinnslu verkefnisins hefur verið leitað til fjölmargra aðila um allt land, innan landbúnaðarins og skólakerfisins og víðar.

Margmiðlunardiskurinn um Fróðleiksfúsa í sveitinni var unninn með það fyrir augum að hann henti vel til kennslu í 5.-7. bekk grunnskóla en auðvelt er að nota hluta af efni hans í kennslu yngri bekkja og einnig eru þar ýmsar upplýsingar sem nýtast vel nemendum á unglingastigi grunnskólans.

Verkefnavinnu með íslenskan landbúnað er hægt að tengja bæði samfélagsfræði og náttúrufræði á miðstigi. Í landafræði Íslands, sem gjarnan er kennd í 5. bekk, eru nemendur að læra um atvinnuhætti og búsetumynstur og lifnaðarhætti í landinu og þar mun þetta fræðsluefni að nýtast vel. Í náttúrufræðikennslu er unnt að tengja efnið hugmyndinni um stöðu mannsins í náttúrunni og þeim áhrifum sem hann hefur þar, neikvæðum og jákvæðum.

Á yngsta stigi getur diskurinn komið að gagni því þar er úr ýmsu efni að velja sem ekki er nákvæmlega afmarkað við bekki eða aldur. Það eru þó ákveðin atriði sem er gjarnan unnið með, t.d. húsdýrin okkar, og ýmislegt um lifnaðarhætti á Íslandi í nútíð og fortíð. Þar getur efnið á diskinum nýst kennurum, ekki síst vegna þess að stærstur hluti textans er lesinn og hentar því þó nemendur séu ekki orðnir hraðlæsir. Þeir efnisþættir disksins sem fjalla um húsdýrin og búgreinarnar henta vel í kennslu yngri barna.

 

 Leit á vef
 
Sameiginlegur vefur
 

Athyglisverðir tenglar

dkBúbót handbók

Eyðublöð

Samningar

Forrit fyrir bændur

Greiðslumark

Lög og reglugerðir

Tölur og gjaldskrár

Útgefið efni

Þéttbýlið og sveitin