Landbunadur.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst
 
 
Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
 
 
Bændasamtökin
Félagssvið
Launakjör
Félagskerfi
Sjúkrasjóður BÍ
Orlofssjóður BÍ
Orðskýringar
Mánaðaryfirlit
Verðlagning búvara
Verðl.grundv./Framleiðsluk.
Mat á verðskrám
Hagtölur
Verð á greiðslumarki
Greiðslumark
Beingreiðslur
Úrelding gróðurhúsa
Samningar
Eyðublöð
Álags- og jöfnunargr.
Lög, reglug. og augl.
Ráðgjafarsvið
Útgáfa og kynning
Tölvudeild
 
Landbúnaðarnetföng
 
Innskráning
 
Vefpóstur BÍ
 
Vefpóstur BSB
 


Greiðslumark

Greiðslumark lögbýla er tiltekið magn mjólkur, mælt í lítrum, sem áveðið er fyrir hvert lögbýli, sbr. gr. 4.2. og veitir rétt til beinnar greiðslu úr ríkissjóði. Greiðslumark til framleiðslu mjólkur verðlagsárið 2003/2004 er 105 milljónir lítra. Beingreiðsla er stuðningur við framleiðslu og markað fyrir mjólkurafurðir, greiddur úr ríkissjóði til greiðslumarkshafa og skal svara til 47,1% af lágmarksverði á innleggsdegi.

Beingreiðslumark sauðfjárafurða er tiltekin fjárhæð, kr. 1.740 millj. á verðlagi í mars 1998. Greiðslumark lögbýla er tiltekinn fjöldi ærgilda*, sem ákveðið er fyrir hvert lögbýli og veitir rétt til beinnar greiðslu úr ríkissjóði. Árið 2003 er greiðsla á ærgildi kr. 4.426. Verðbætur verða greiddar í október 2003.

Bændasamtök Íslands halda skrá yfir greiðslumark lögbýla (aðila að greiðslumarki) og handhafa réttar til beingreiðslna. Öll aðilaskipti og handhafaskipti þarf því að tilkynna til Bændasamtaka Íslands.

Handhafaskipti

Beingreiðslur greiðast ábúanda á lögbýli og á hverju lögbýli skal aðeins einn framleiðandi vera skráður handhafi. Þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila er að ræða sem standa að búinu er þó heimilt að skrá þá sérstaklega. Sjálfstæður rekstraraðili telst sá einn sem hefur sjálfstætt virðisaukaskattsuppgjör. Tilkynna skal Bændasamtökum Íslands allar breytingar á því hver teljist vera handhafi beingreiðslna. Hér má nálgast eyðublöð til að tilkynna handahafaskipti og breytingar á reikningsnúmerum beingreiðslna.

Handhafaskipti beingreiðslna (pdf skjal)
Handhafaskipti beingreiðslna (word skjal)
Breytingar á reikningsnúmeri beingreiðslna

Nánari upplýsingar fást hjá Bændasamtökum Íslands.

Aðilaskipti að greiðslumarki

Um aðilaskipti að greiðslumarki gilda annars vegar reglugerð um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og beingreiðslur til bænda verðlagsárið 2003/2004 nr. 441/2003 (greiðslumark í mjólk) og hins vegar reglugerð um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum og beingreiðslur 2001-2007 nr. 19/2001.

Tilkynning um aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur

Samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 441/2003 eru heimil aðilaskipti að greiðslumarki til mjólkurframleiðslu á milli lögbýla. Sé ábúandi annar en eigandi/eigendur þess þarf samþykki beggja/allra fyrir ráðstöfun greiðslumarks frá lögbýli. Leiguliða er heimilt að kaupa greiðslumark á lögbýli og skal það sérstaklega skráð á nafn hans. Leiguliða er heimilt að selja sérskráð greiðslumark án samþykkis jarðareiganda. Þó skal jarðareigandi eiga forkaupsrétt við ábúðarlok leiguliða á því markaðsverði sem síðast liggur fyrir skv. könnun sem Bændasamtök Íslands annast.

Aðilaskipti greiðslumarks skulu tilkynnt á þar til gerðum eyðublöðum sem Bændasamtök Íslands láta í té og liggja frammi á skrifstofum búnaðarsambanda. Með tilkynningu um aðilaskipti að greiðslumarki skal fylgja staðfesting um eignarhald á lögbýlinu. Þá skal seljandi leggja fram þinglýsingarvottorð fyrir það lögbýli sem selt er frá og skriflegt samþykki allra veðhafa fyrir sölunni. Tilkynningar um aðilaskipti fyrir verðlagsárið 2003-2004 skulu hafa borist Bændasamtökum Íslands í síðasta lagi 20. júní 2003 til að þau taki gildi á verðlagsárinu. Aðilaskiptin taka fyrst gildi þegar staðfesting Bændasamtaka Íslands liggur fyrir.

Tilkynning um aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur (pdf skjal)
Tilkynning um aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur (word skjal)

Aðilaskipti að greiðslumarki í sauðfé

Samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 19/2001 er nú heimilt að flytja greiðslumark í sauðfjárframleiðslu milli lögbýla.

Tilkynningu um flutning skal senda Bændasamtökum Íslands fyrir 15. janúar á því ári sem flutningur tekur gildi.

Tilkynning um aðilaskipti að greiðslumarki í sauðfé (pdf skjal)
Tilkynning um aðilaskipti að greiðslumarki í sauðfé (word skjal)


 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Athyglisverðir tenglar

dkBúbót handbók

Eyðublöð

Samningar

Forrit fyrir bændur

Greiðslumark

Lög og reglugerðir

Tölur og gjaldskrár

Útgefið efni

Þéttbýlið og sveitin