Landbunadur.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst
 
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
 
 
Um Bændasamtökin
Félagssvið
Ráðgjafarsvið
Útgáfa og kynning
Tölvudeild
 
 
Eyðublöð
Stofnanaskrá
Landbúnaðarnetföng
Búnaðarsambönd
Búgreinasambönd
 
Vefpóstur BÍ
Vefpóstur BSB

Auglýsingar


 
Innskráning


Samningur um verkefni samkvæmt búnaðarlögum nr. 70/1998 og framlög ríkisins til þeirra.

I. KAFLI.

Almennt.
1. gr.

Samkvæmt 3. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998 veitir ríkissjóður fé til verkefna á sviði jarðabóta, búfjárræktar og leiðbeiningarstarfsemi, einnig til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins vegna atvinnuuppbyggingar í sveitum og verkefna sem stuðla að aukinni framleiðni í íslenskum landbúnaði. Öll framlög sem ríkissjóður greiðir til leiðbeiningarstarfsemi, búfjárræktar og jarðabóta skal greiða til Bændasamtaka Íslands sem annast ráðstöfun þessara fjármuna samkvæmt samningi þessum.


2. gr.

Framlög ríkisins á grundvelli þessa samnings miðast fyrst og fremst við að um sé að ræða stuðning við þróunarverkefni og önnur verkefni sem stuðla að framförum í íslenskri búvöruframleiðslu og aukinni hagkvæmni í búrekstri með það að markmiði að styrkja samkeppnishæfni landbúnaðar og efla hag bænda. Meðal annars skal leggja áherslu á aukna afurðasemi, innlenda fóðuröflun og fóðurnýtingu, betra starfsumhverfi bænda, verndun umhverfis og bætta nýtingu landgæða, aukin gæði framleiðslunnar og velferð búfjár.


II. KAFLI.

Leiðbeiningarstarfsemi.
3. gr.

Ríkissjóður greiðir árlega framlög til ráðgjafarþjónustu í samræmi við markmið skv. 17. gr. og fyrirkomulag skv. 18. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Þjónustan greinist í tvennt, landsþjónustu á vegum Bændasamtaka Íslands og héraðaþjónustu á vegum búnaðarsambanda/leiðbeiningar-miðstöðva.

Megináherslur á einstökum sviðum eru eftirfarandi:


    Jarðrækt: Efling ræktunarmenningar, hagkvæm fóðuröflun með lágmarks röskun umhverfis. Viðhald framræslu, endurræktun - gras, grænfóður og korn. Markviss áburðarnotkun með tilliti til hagkvæmni, þar með talin hámarksnýting búfjáráburðar.

    Garðyrkja - ylrækt: Gæðastýring með tilliti til hagkvæmni og lágmörkunar í notkun hjálparefna. Þróun raflýsingar, átak í framleiðniaukningu, lenging uppskerutíma, aukin fjölbreytni í ræktun.

    Búfjárrækt: Aukin afurðasemi, fjölbreyttari og betri afurðir og hagkvæmari framleiðsla. Áframhaldandi þróun og nýting bestu kynbótaaðferða, stöðugt endurmat á ræktunar-markmiðum með tilliti til óska neytenda og aukin þátttaka bænda í kynbótastarfi. Gæðastýring, nákvæmnisfóðrun og umhirða er tryggi velferð búfjárins.

    Hagfræði og rekstrarráðgjöf: Átak í rekstrarráðgjöf á vegum Bændasamtaka Íslands og búnaðarsambanda. Þróun hjálpargagna fyrir bændur og ráðunauta til rekstrargreiningar, samanburðar og áætlanagerðar fyrir einstök bú. Áhersla lögð á tengingu við fóður- og áburðaráætlanir.

    Lífrænn/vistvænn búskapur og landnýting: Kynning og ráðgjöf um lífræna og vistvæna gæðastýringu, mat á möguleikum einstakra bænda og ráðgjöf um mismunandi valkosti. Rétt landnýting og beitarstjórn eftir aðstæðum. Stuðla að líffræðilegri fjölbreytni og sjálfbærri þróun.

    Byggingar og bútækni: Þróun og ráðgjöf um byggingu hagkvæmustu útihúsa með tilliti til kostnaðar, starfsaðstöðu og búfjárverndar. Stóraukin fræðsla um hagkvæmni mismunandi fjárfestingarkosta varðandi vélar og tæki.

    Hlunnindi og atvinnuráðgjöf: Ráðgjöf um meðferð og nýtingu á hlunnindum sem fylgja jörðum. Hagnýting í ljósi breyttra atvinnuhátta og ráðgjöf um nýja atvinnumöguleika á lögbýlum. Hvatning til nýbreytni og mat á hugmyndum.


Árleg framlög ríkissjóðs til ráðgjafarþjónustu í milljónum króna verða sem hér segir:

Leiðbeiningarstarfsemi
1999
2000
2001
2002
2003
Landsþjónusta
97,6
98
98
98
98
Héraðaþjónusta:
Grunnframlag
56,4
54,6
54,6
54,6
54,6
Búrekstraráætlanir
10
10
15
20
Samtals
154
162,6
162,6
167,6
172,6

Undir framlög til ráðgjafarþjónustu falla framlög vegna umsjónar með verkefnum skv. lögum um búfjárhald nr. 46/1991 og búnaðarlögum nr. 70/1998.


4. gr.
Landsþjónusta.
Landsþjónustan hefur, ásamt fagráðum, forystu um þekkingaröflun og skipulag leiðbeiningar-starfsins, veitir héraðsráðunautum upplýsingar og aðstoð og annast einstaklingsleiðbeiningar í þeim greinum, þar sem ekki er grundvöllur fyrir að veita sérhæfða ráðgjöf á vegum búnaðarsambanda.

Samningsaðilar eru ásáttir um, að á samningstímanum skuli leggja vaxandi áherslu á hagfræði- og rekstrarleiðbeiningar. Þá skal unnið að því að styrkja samstarf ráðunauta við rannsókna- og menntakerfi landbúnaðarins.

Landsráðunautar starfa í eftirtöldum greinum eða fagsviðum:

Jarðrækt
Garðyrkju - ylrækt
Búfjárrækt:
nautgriparækt
sauðfjárrækt
hrossarækt
svínarækt
alifuglarækt
loðdýrarækt
kynbótafræði og þróun
Lífrænn/vistvænn búskapur og landnýting
Byggingar og bútækni
Hagfræði
Atvinnuþróun á lögbýlum og nýting hlunninda

Landsráðunautar sinna störfum á skrifstofu, fylgjast með og miðla innlendum og erlendum rannsóknaniðurstöðum, svara fyrirspurnum og veita fræðslu með greinaskrifum, fundahöldum og með því að halda námskeið, auk heimsókna á leiðbeiningarmiðstöðvar og til einstakra bænda eftir ástæðum hverju sinni. Þeir veita upplýsingar til almennings og eru stjórnvöldum til ráðuneytis, hver á sínu sviði.


5. gr.
Héraðsþjónusta.
Héraðsráðunautar veita bændum ráðgjöf og fræðslu um búskap, í samræmi við þau markmið sem að framan greinir. Þeir sinna störfum á skrifstofu og standa fyrir fræðslufundum og námskeiðum, ýmist einir eða í samstarfi við Bændasamtök Íslands eða aðrar fagstofnanir. Á samningstímanum verður lögð aukin áhersla á heimsóknir til bænda og sérhæfða einstaklingsráðgjöf, sem búnaðarsambönd/-leiðbeiningarmiðstöðvar munu veita á eftirtöldum sviðum:

Jarðrækt
Nautgriparækt
Sauðfjárrækt
Hrossarækt
Landnýtingu
Hagfræði, rekstrargreiningu og áætlunum

Um fyrirkomulag einstaklingsráðgjafar í öðrum greinum mun verða samið milli Bændasamtaka Íslands og búnaðarsambanda/leiðbeiningarmiðstöðva.

Unnið skal að því á samningstímanum að færa þessa þjónustu saman á fimm leiðbeiningar-miðstöðvar sem hver um sig hafi faglega burði til að veita ofangreinda þjónustu. Meðan svo er ekki, skulu búnaðarsambönd/ leiðbeiningarmiðstöðvar tryggja umbjóðendum sínum aðgang að þjónustunni með samningum við aðrar leiðbeiningar-miðstöðvar eða fagstofnanir.

Framlög ríkissjóðs greiðast búnaðarsamböndum eða tilgreindum leiðbeiningar-miðstöðvum skv. ákvörðunum búnaðarsambandanna.

6. gr.
Búrekstraráætlanir.
Áhersluverkefni í ráðgjöf á vegum héraðsbúnaðarsambanda /leiðbeiningarmiðstöðva á samningstímanum skal vera gerð búrekstraáætlana fyrir einstök bú. Búrekstraráætlun skal gera til 3 - 5 ára. Markmið hennar skulu vera tímasett og mælanleg og um gerð hennar vera skriflegur samningur milli bónda og leiðbeiningarmiðstöðvar sem feli í sér reglubundna eftirfylgni ráðunautar. Áætlunin byggi á greiningu á rekstri viðkomandi bús og taki til allra fjárfestinga og sem flestra rekstrarþátta í búrekstrinum. Fagráð í hagfræði skilgreini lágmarkskröfur til búrekstraráætlana sem búnaðarsambönd geta fengið framlög út á.


7. gr.
Greiðslur.
Árleg grunnframlög til héraðsþjónustunnar samkvæmt 3. gr. greinast í eftirfarandi þætti:

1. Uppbætur á lífeyri fyrrverandi starfsmanna búnaðarsambandanna.
2. Framlag til jöfnunar á aðstöðumun. Allt að 4 milljónum króna skal skipt milli þeirra búnaðarsambanda/leiðbeiningarmiðstöðva þar sem erfiðast er að veita bændum þjónustu sökum vegalengda og annarra náttúrulegra skilyrða. Bændasamtök Íslands ákvarða skiptinguna.
3. Að lokinni ráðstöfun samkvæmt 1. og 2. tl. skal því sem óráðstafað er skipt á milli búnaðarsambanda/leiðbeiningarmiðstöðva, að jöfnu (50/50) í réttu hlutfalli við fjölda bænda annars vegar og álagt búnaðargjald hins vegar.

Árleg framlög vegna búrekstraráætlana greiðast til búnaðar-sambanda/leiðbeiningar-miðstöðva eftir fjölda þáttakenda í verkefninu og umfangi verkefna.


III. KAFLI

Búfjárrækt.
8. gr.
Eftirtalin verkefni á sviði búfjárræktar skulu njóta framlaga úr ríkissjóði í samræmi við markmið í 9. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998, eins og nánar greinir í 9. gr. samnings þessa:

1. Kynbótaskýrsluhald.
2. Kúasæðingar.
3. Ræktunarstöðvar, þar með talið einangrunarstöðvar.
4. Verndun búfjárstofna, erfðanefnd búfjár.

9. gr.
Framlög ríkisins til búfjárræktar greinast á viðfangsefni og búgreinar eins og hér segir:

Kynbótaskýrsluhald19992000200120022003
Uppgjör kynbótaskýrslna77777
Framkvæmd skýrsluhalds, söfnun
skýrslna, umsjón, eyðublöð. sendingarkostnaður, forritun o.fl.
Sauðfjárrækt.
Nautgriparækt
Hrossarækt
Svínarækt
Loðdýrarækt
5,5
5,5
4,5
1,2
1,2
5,5
5,5
4,5
1,2
1,2
5,5
5,5
4,5
1,2
1,2
5,5
5,5
4,5
1,2
1,2
5,5
5,5
4,5
1,2
1,2
Kúasæðingar
Jöfnun flutningskostnaðar4,24,24,24,24,2
Rekstarframlag1510101010
Ræktunarstöðvar, einangrunarst.
Nautastöð BÍ44444
Nautastöð LK1,51,51,51,51,5
Sauðfjársæðingastöðvar1,51,51,51,51,5
Einangrunarstöð Svínar.fél. Ísl.1,51,51,51,51,5
Stofnungi1,51,51,51,51,5
Verndun búfjárstofna
Verndun búfjárstofna, erfðanefnd búfjár1,12,52,52,52,5
Samtals55,251,651,651,651,6

Bændasamtök Íslands ákveða nánar, í samráði við viðkomandi fagráð, skiptingu þeirra fjármuna, sem renna til framkvæmdar á kynbótaskýrsluhaldi. Enn fremur skipta Bændasamtök Íslands fjármunum til kúasæðinga milli búnaðarsambanda. Fyrirkomulag framlaga til kúasæðinga vegna áranna 2001-2003 skal ákveðið með tilliti til þess hvort og hvar hagkvæmt er að dýralæknar annist sæðingar.


IV. KAFLI

Þróunarverkefni - jarðabætur á lögbýlum.
10. gr.
Ríkissjóður veitir fé til verkefna samkvæmt 6. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998 sem hér segir, talið í milljónum króna:

Ár19992000200120022003
Jarðabætur4040555585

11. gr.
Í samræmi við markmið samkvæmt 6. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998 er Bændasamtökum Íslands falið að veita framlög til eftirtalinna jarðabóta á einstökum jörðum:

NrVerkefnaflokkur19992000200120022003
1Endurræktun lands, þ.m.t. garðlands, vegna aðlögunar að lífrænum búskap, einnig aðlögun að lífrænni ylrækt. Skilyrði þess að fá framlag er að viðkomandi hafi gert aðlögunarsamning við vottunarstofu, sem vottar að endurræktunin sé samkvæmt reglum um lífræna ræktun. Hámarks framlag 25.000 kr. á ha. lands og 250 kr. á fermetra í gróðurhúsi.558810
2Umhverfis- og gæðaverkefni í garðyrkju/ylrækt.
a) Kaup á kolsýrumælum. Framlag verður allt að 25% af kaupverði mælis, þó að hámarki 100.000 kr.
b) Tölvubúnaður til loftlagsstýringar. Framlag verður allt að 25% af kaupverði búnaðar, þó að hámarki 150.000 kr.
c) Áburðarblandari. Framlag verður allt að 25% af kaupverði tækis, þó að hámarki 150.000 kr.
d) Kælibúnaður í geymslur. Framlag verður allt að 25 % af kaupverði búnaðar, þó að hámarki 350.000. kr.
446610
3Þróunarverkefni í kornrækt. Skilyrði fyrir framlagi er að sáð sé byggi til kornþroska í a.m.k. 2 ha. lands. Hámarks framlag verður 30.000 kr. á bú.88101012
4Beitarstjórnun og landnýting. Framlög til landnýtingaráætlana. Skilyrði framlags er að áætlun sé gerð í tengslum við vistvæna eða lífræna gæðastýringu, búrekstraráætlun eða annað viðurkennt gæðastýringarkerfi.
Hámarks framlag verður 40.000 kr. á bú.
444410
5Bætt aðgengi almennings að landinu. Verkefni sem greiða fyrir umferð gangandi fólks og stuðla að bættri þjónustu við það, t.d. merking gönguleiða, uppsetning á prílum, borðum á áningarstöðum, upplýsingaskiltum og minniháttar göngubrúm. Framlag verður allt að 50% af kostnaði, þ.m.t. vegna vinnu, en þó að hámarki 200.000 kr. á bú.446610
6Verkefni tengd búfjárhaldi. Um er að ræða framkvæmdir sem nauðsynlegar eru til að uppfylla nýjar/breyttar kröfur um aðbúnað búfjár, s.s. breyttar innréttingar í gripahúsum eða skýli fyrir útigangshross. Árin 1999 og 2000 hafa skýli fyrir útigangshross forgang í úthlutun framlaga. Framlag vegna skýla verður allt 50.000 kr. á bú.559918
7Viðhald framræslu lands vegna ræktunar sem er í notkun á viðkomandi lögbýli. Eingöngu er um að ræða hreinsun á þegar gröfnum skurðum, sem ræsa fram ræktað land, þ.m.t. garðland, ásamt nauðsynlegum framrásum, eftir mati ráðunautar á þörf fyrir hreinsun. Hámarks framlag verður allt að 25.000 kr. á hreinsaðan km. 1010121215
Samtals4040555585

Nú er heildarfjárhæð í umsóknum hvers árs um framlög til einhvers þeirra verkefnaflokka sem hér eru taldir lægri en samningur þessi kveður á um og verður þá ónýtt fé fært til næsta árs innan sama verkefnaflokks. Nýtist fjármunir ekki að fullu annað árið í röð skal útdeila umframfé á því ári til annara verkefnaflokka sem vöntun er í, í sömu hlutföllum og framlög eru veitt samkvæmt samningi þessum.

Nú er heildarfjárhæð í umsóknum hvers árs um framlög til tiltekins verkefnaflokks sem hér eru talin hærri en samningur þessi kveður á um, og skulu þá framlög til verkefna skert hlutfallslega innan flokksins.

Skilyrði þess að verkefni njóti framlags eru að um það hafi verið sótt og með því mælt af viðkomandi búnaðarsambandi eða leiðbeiningarmiðstöð. Umsóknum skal skilað til Bændasamtaka Íslands fyrir 15. nóvember vegna verkefna sem fyrirhuguð eru árið eftir. Umsóknum skal svarað fyrir 1. febrúar, og skal koma fram í svarinu hvort fullt framlag verði veitt, eða hver verði lágmarksupphæð framlags, ef um skerðingu er að ræða samkvæmt 3. mgr.

Úttektir á framkvæmdum, staðfestar af viðkomandi búnaðarsambandi/leiðbeiningarmiðstöð, skulu berast Bændasamtökum Íslands fyrir 15. nóvember og skulu framlög greidd fyrir árslok. Nú ganga ekki öll framlög út á grundvelli samþykktra umsókna, til dæmis vegna þess að ekki varð af framkvæmd, og skal þá ónýttu fé deilt hlutfallslega jafnt á framkvæmdir innan hvers verkefnis, þó þannig að framlag til hvers umsækjanda sé í samræmi við reglur samningsins um hámark framlags. Nú er fé enn ónýtt og skal það þá fært til næsta árs og ráðstafað til sömu verkefna.

Ákvæði þessarar greinar skulu tekin til endurskoðunar við reglulega endurskoðun þessa samnings.

Bændasamtökum Íslands er á samningstímanum óheimilt að veita framlög af því fé sem ríkissjóður veitir til jarðabóta til annarskonar verkefna en hér eru upp talin.


V. KAFLI

Framleiðnisjóður landbúnaðarins.
12. gr.
Ríkissjóður veitir fé til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins sem starfar eftir lögum nr. 89/1966, með síðari breytingum, sem hér segir.

Ár19992000200120022003
Framleiðnisjóður175170170165165

Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998 skal nýta framlög ríkisins til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins til atvinnuuppbyggingar í sveitum og verkefna sem stuðla að aukinni framleiðni í íslenskum landbúnaði.


VI. KAFLI

Önnur ákvæði.
13. gr.
Samningsgögn.
a. Búnaðarlög nr. 70/1998 og reglugerð um búnaðarmál.
b. Lög um fjárreiður ríkisins nr. 88/1997.
c. Lög um Ríkisendurskoðun nr. 86/1997.
14. gr.
Fjárhæðir.
Fjárhæðir í samningi þessum skulu haldast óbreyttar út samningstímabilið, sbr. þó ákvæði 20. gr. um endurskoðun samnings þessa.

15. gr.
Gjaldtaka vegna veittrar þjónustu til notenda.
Bændasamtök Íslands og aðrir aðilar sem fara með verkefni samkvæmt búnaðarlögum nr. 70/1998, geta tekið gjald fyrir þá þjónustu sem þau veita á grundvelli þessa samnings, sbr. heimild til slíkrar gjaldtöku í 3. mgr. 3. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998 og samkvæmt gjaldskrá sem land-búnaðar-ráðherra staðfestir.

16. gr.
Ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995.

Bændasamtök Íslands skulu vegna samnings þessa hlíta 72. og 104. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995, með síðari breytingum.


17. gr.
Ábyrgð.
Fjárhagsleg ábyrgð ríkisins vegna samningsins takmarkast við þær fjárhæðir sem eru tilgreindar í samningi þessum. Íslenska ríkið setur ekki tryggingar fyrir greiðslum.

Bændasamtök Íslands, búnaðarsambönd eða leiðbeiningarmiðstöðvar, eftir því sem við á, bera alla ábyrgð á framkvæmd samningsins. Þannig bera Bændasamtök Íslands, búnaðarsambönd eða leiðbeiningarmiðstöðvar eftir því sem við á, ábyrgð á framkvæmd samningsins gagnvart þeim sem fá framlög á grundvelli hans.

Bændasamtök Íslands auglýsa með fullnægjandi hætti og með nægilegum fyrirvara hvaða verkefni og viðfangsefni á sviði jarðabóta geta notið framlags, hver séu skilyrði þess að framlag verði veitt og annað það sem telja verður æskilegt að upplýsa væntanlega umsækjendur um, þar með talið um rétt umsækjenda og meðferð kvartana hjá samtökunum.


18. gr.
Eftirlit með samningi.
Landbúnaðarráðuneytið hefur eftirlit með framkvæmd samningsins. Bændasamtök Íslands skulu tilkynna landbúnaðarráðuneytinu hver fari með yfirstjórn framkvæmdar samningsins fyrir hönd samtakanna. Bændasamtökum Íslands er heimilt að skipa nýjan stjórnanda vegna framkvæmdar samningsins án samþykkis landbúnaðarráðuneytisins. Landbúnaðarráðuneytið skal hafa aðgang að öllum upplýsingum sem Bændasamtök Íslands skrá vegna framkvæmdar samningsins. Bændasamtökum Íslands ber að skrá hverjir eru viðtakendur framlaga sem þau ráðstafa á grundvelli þessa samnings, fjárhæð framlaga, verkefna sem framlög renna til og dagsetningu greiðslna. Bændasamtök Íslands skulu skrá sérstaklega kvartanir sem þeim berast vegna framkvæmdar samningsins og ennfremur hvaða meðferð kvartanir fá hjá samtökunum.

Bændasamtök Íslands skila árlega yfirliti til landbúnaðarráðuneytis um heildarfjárhæðir greiddra framlaga og skulu fjárhæðir vera sundurgreindar á milli verkefna eða viðfangsefna sem framlags geta notið.

Bændasamtök Íslands halda fjárreiðum sem samningur þessi nær til aðgreindum í ársreikningi frá annarri starfsemi sinni.

Verði skattskyldur hagnaður af framkvæmd samnings þessa skal verja þeim hagnaði sem eftir er þegar skattar hafa verið greiddir til verkefna samkvæmt samningi þessum.

Bændasamtök Íslands skila landbúnaðarráðuneytinu ársreikningi sem færður er í samræmi við lög um ársreikninga nr. 144/1994, með síðari breytingum.

Samkvæmt lögum um Ríkisendurskoðun nr. 86/1997 hefur Ríkisendurskoðun heimild til eftirlits með framkvæmd samnings þessa.


19. gr.
Meðferð ágreinings og beiting viðurlaga.
Vanefni Bændasamtök Íslands samningsbundnar skyldur sínar er heimilt að skerða greiðslur samkvæmt samningi þessum, enda hafi samningsaðilar fjallað um vanefndir þær sem um ræðir. Telji ráðherrar landbúnaðar og fjármála að vanefndir séu staðreyndar skal veita Bændasamtökum Íslands hæfilegan frest til úrbóta áður en ákvörðun er tekin um að skerða greiðslur.

Samstarfs- og sáttanefnd Bændasamtaka Íslands, landbúnaðarráðuneytisins og fjármálaráðu-neytisins fjallar um ágreiningsmál sem upp kunna að rísa milli samningsaðila vegna samnings þessa og tekur ákvarðanir um lausn ágreiningsmála. Nefndin skal skipuð einum fulltrúa frá landbúnaðarráðuneyti, einum frá fjármálaráðuneyti og tveimur frá Bændasamtökum Íslands. Hver aðili um sig ber kostnað af sínum fulltrúum. Rísi mál út af samningi þessum skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.


20. gr.
Gildistími og endurskoðun.
Samningur þessi tekur gildi við undirskrift hans og gildir til 31. desember árið 2003. Endurskoða skal samninginn og framlengja annað hvert ár. Við endurskoðun hans fyrir árslok 2000 skal ákveðið hvort og þá hvernig tengja skuli greiðslu jarðabóta skilyrði um að umsækjandi starfi eftir viðurkenndu gæðastjórnunarkerfi og/eða búrekstraráætlun.

Við endurskoðun samnings skal leiðrétta framlög til ráðgjafarþjónustu í samræmi við greiðslur vegna lífeyrisskuldbindinga Bændasamtaka Íslands og búnaðarsambanda vegna núverandi og fyrrverandi starfsmanna þeirra. Umsamin framlög til ráðgjafarþjónustu og búfjárræktar skal ennfremur endurskoða með hliðsjón af launaþróun í landinu.

Samningsaðilar skulu gera úttekt fyrir endurskoðun samnings þessa árið 2000 á umfangi umsýslu Bændasamtaka Íslands vegna þeirra verkefna sem þeim er falið að annast samkvæmt lögum um búfjárhald nr. 46/1991 og búnaðarlögum nr. 70/1998, sbr. 11. gr. samnings þessa.

Bráðabirgðaákvæði.
Styrkhæf verkefni og framlög til einstakra verkefna árið 1998 eru þau sömu og kveðið er á um í samningi þessum vegna áranna 1999-2003. Þó er heimilt að styrkja vatnsveitur, sem teknar voru út á árinu 1998 og uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 44/1999 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Framlag getur að hámarki verið það sem sú reglugerð heimilar. Framlög til jarðabóta samkvæmt fjárlögum árið 1998 eru kr. 39.000.000.- Framlög vegna einstakra framkvæmda innan hvers verkefnaflokks árið 1998 skulu vera jöfn og áætluð framlög samkvæmt umsóknum vegna einstakra framkvæmda í sama verkefnaflokki árið 1999, sbr. 11. gr. Umsóknir vegna framkvæmda árið 1998 skulu berast Bændasamtökum Íslands eigi síðar en 15. apríl 1999 og skal staðfest úttekt á framkvæmd fylgja hverri umsókn. Framlög skulu greidd eigi síðar en 31. maí 1999. Nú er heildarfjárhæð í umsóknum vegna verkefna árið 1998 lægri en fjárveiting til þeirra og er þá heimilt að færa ónýtt fé til sömu eða annara verkefna sem sótt hefur verið um vegna framkvæmda árið 1999, að loknu uppgjöri vegna vatnsveitna. Að öðru leyti en hér greinir gilda ákvæði samnings þessa um ráðstöfun heildarframlags til jarðabóta samkvæmt fjárlögum ársins l998.

Umsóknum vegna framkvæmda árið 1999 skal skilað fyrir 15. apríl 1999 og skal þeim svarað eigi síðar en 31. maí 1999.

Samningur þessi er gerður í þremur samhljóða eintökum, eitt frumrit skal vera í vörslu Bændasamtaka Íslands, eitt í vörslu landbúnaðarráðuneytisins og eitt í vörslu fjármálaráðuneytisins.


Reykjavík, 5. mars 1999.


F.h. Bændasamtaka Íslands:

______________________
Ari Teitsson
______________________
Guðmundur Bjarnason,
landbúnaðarráðherra
______________________
Hrafnkell Karlsson
_______________________
Sigurgeir Þorgeirsson
______________________
Geir H. Haarde,
fjármálaráðherra


 

 Leit á vef

   


Sameiginlegur vefur
 
 

 

Úr dagbók

 

Landbúnaðarmál

Alifuglarækt

Búrekstur/Hagfræði

Byggingarþjónusta

Garðyrkja/Ylrækt

Hlunnindi

Hrossarækt

Jarðrækt/Fóðuröflun

Lífrænn landbúnaður

Loðdýrarækt

Nautgriparækt

Sauðfjárrækt

Svínarækt

Umhverfismál

Önnur málefni