Fjörunytjar
Hér er um að ræða margar tegundir skeldýra og þörunga.
Skeldýr
Þar er helst að nefna krækling sem víða er mikið til af, en hann er tiltölulega lítið nýttur, en er afbragðs fæða sem stórauka mætti nýtingu á.
Skeljar
Skeljar á fjörum eru vannýttur möguleiki sem skraut eða hráefni í listmuni o.fl.
Þörungar
Nýting þörunga til manneldis og fleiri nota er þekkt um allan heim. Þar má m.a. telja þang, þara, marínkjarna, purpurahimnu og söl. Af þessu eru sölin þekktust hérlendis sem fæða, enda voru þau um aldir mikilvægur þáttur í fæðu landsmanna. Söl eru enn nýtt og í vaxandi mæli til sölu á innanlandsmarkaði. Erlendis eru söl þekkt neysluvara og hafa þau verið flutt út frá Íslandi en aðeins í smáum stíl. Sölin eru auðug af kolvetnum, próteinrík, fitusnauð, steinefnarík og innihalda nokkuð af vítamínum.
|