Landbunadur.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst
 
 
Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Fagráð
Tenglar
Áskrift að síðum
 
 
Lífrænn landbúnaður
Upplýsingar
Lífrænn búskapur
Lífræn jarðrækt
Lífræn búfjárrækt
Lífrænir bændur
Vottun og eftirlit
Lög og reglur
Markaður - neytendur
Fagráð - rannsóknir
Vistmenning
Ritaskrá
Lífrænir tenglar
 
 
Bændasamtökin
Forrit
Greiðslumark
Tölur
Útgefið efni
Þéttbýlið og sveitin
Lög og reglugerðir
Eyðublöð
Landbúnaðarnetföng
 
Búnaðarsambönd
Búgreinasambönd
 
Innskráning
 
Vefpóstur BÍ
 
Vefpóstur BSB
 

Lög og reglur



Kýrnar í Skaftholti í Gnúpverjahreppi njóta frelsis og friðsældar
í samræmi við markmið lífræns búskapar (ÓRD,1996)
Um það leyti sem vakningar í lífrænum búskap var farið að gæta hófst undirbúningur að setningu laga og reglna, nánar tiltekið 1992. Þáttaskil urðu með setningu sérstakra laga um lífræna landbúnaðarframleiðslu í árslok 1994 ( nr. 162/1994 ) og þeim var fylgt eftir snemma árs 1995 með setningu ítarlegrar reglugerðar sama efnis ( nr. 219/ 1995 ). ( sjá Lífrænn búskapur , Ritaskrá ). Allt var þetta byggt á alþjóðlegum grunni . Tilgreindar voru lágmarkskröfur sem gerðar eru til viðurkenndra lífrænna framleiðsluhátta við íslenskar aðstæður innan ramma grunnreglna Alþjóðasamtaka lífrænna landbúnaðarhreyfinga ( IFOAM ) og í samræmi við reglur Evrópusambandsins. Þá var tekið mið af Dagskrá 21 frá Ríó de Janeiro varðandi sjálfbæran landbúnað, frá 1992. Sem aðili að Evrópska efnahagssvæðinu þarf Ísland að taka upp löggjöf Evrópusambandsins á þessu sviði og er því lagaumhverfið að breytast. Sem fyrr þarf eftirlits- og
vottunarþjónustan að vera innan laga- og reglugerðarrammans og því hefur TÚN endurskoðað framleiðslureglur sínar til samræmingar.
Málaflokkurinn heyrir sem fyrr undir landbúnaðarráðuneytið. Vottunarstofan skal virða lágmarkskröfur löggjafarinnar en henni er heimilt að
gera meiri kröfur en þar eru tilgreindar. ( sjá Vottun og eftirlit ).
 

 Leit í starfsfólk
Sameiginlegur vefur