Landbunadur.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst
 
Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
 
 
Bændasamtökin
Félagssvið
Ráðgjafarsvið
Útgáfa og kynning
Tölvudeild
 
 
Landbúnaðarnetföng
 
 
Búnaðarsambönd
Búgreinasambönd
 
Innskráning
 
Vefpóstur BÍ
 
Vefpóstur BSB
 


Landssamtök sauðfjárbænda
Bændahöllinni v/Hagatorg
Sími: 563 0300
Fax: 562 8290

Netfang:ls@bondi.is
Veffang: www.saudfe.is

Framkvæmdastjóri: Sigurður Eyþórsson


StjórnStarfshættir aðalfunda
Aðildarfélög
Samþykktir
Aðalfundur 1999
LS - Aðalfundur 2000
LS - Aðalfundur 2001
LS - Aðalfundur 2002
LS - Aðalfundur 2003
LS - Aðalfundur 2004
LS - Aðalfundur 2005
Fundargerðir 1998-1999
Fundargerðir árið 2000
Fundargerðir árið 2001
Fundargerðir árið 2002
Fundargerðir árið 2003
Fundargerðir árið 2004
Fundargerðir árið 2005
LS - Aðalfundur 2006 Fundargerðir árið 2006
Fundargerðir árið 2007



Stjórn

Jóhannes Sigfússon, Gunnarsstöðum, 681 Þórshöfn, Símar: 468-1270, 868-7832, Fax: 468-1107
Jóhanna Pálmadóttir, Akri
S.Sindri Sigurgeirsson, Bakkakoti
Fanney Ólöf Lárussdóttir, Kirkjubæjarklaustri.
Baldur Grétarsson, Kirkjubæ


Búnaðarþingsfulltrúarar: Aðalsteinn Jónsson, Klausturseli, Jóhannes Sigfússon, Gunnarsstöðum og
Fanney Ólöf Lárusdóttir, Kirkjubæjarklaustri.


Aðildarfélög LS:

Deild sauðfjárbænda í Búnaðarsambandi Kjalarnesþings.
Guðmundur Jónsson, Reykjum, 270 Mosfellsbæ.
Félag sauðfjárbænda í Borgarfjarðarhéraði.
Einar Guðmann Örnólfsson, Sigmundarstöðum, 311 Borgarnesi.
Félag sauðfjárbænda í Snæfells og Hnappadsýslu
Eggert Kjartansson, Hofstöðum.
Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu.
Ásmundur Daðason, Lambeyrum.
Deild sauðfjárbænda í Búnaðarsambandi Vestfjarða.
Karl Kristjánsson, Kambi II, 380 Reykhólahreppur
Félag sauðfjárbænda í Strandasýslu.
Guðbrandur Björnsson, Smáhömrum, 510 Hólmavík.
Félag sauðfjárbænda í Vestur-Húnavatnssýslu.
Böðvar Böðvarsson, Mýrum 2, 531 Hvammstanga.
Félag sauðfjárbænda í Austur-Húnavatnssýslu.
Birgir Ingþórsson, Uppsölum, 541 Blönduósi.
Félag sauðfjárbænda í Skagafirði.
Smári Borgarsson, Goðdölum, 560 Varmahlíð.
Félag sauðfjárbænda við Eyjafjörð.
Þórarinn Pétursson, Laufási.
Félag sauðfjárbænda í Suður-Þingeyjarsýslu.
Ragnar Þorsteinsson, Sýrnesi, 641 Húsavík.
Deild sauðfjárbænda í Búnaðarsambandi Norður-Þingeyinga.
Einar Ófeigur Björnsson.
Deild sauðfjárbænda í Búnaðarsambandi Austurlands.
Grétar Jónsson, Einarsstöðum, 690 Vopnafirði.
Félag sauðfjárbænda á Fljótsdalshéraði og Fjörðum.
Aðalsteinn Jónsson, Klausturseli, 701 Egilsstöðum.
Félag sauðfjárbænda á Suðurfjörðum.
Lárus Sigurðsson, Gilsá, 760 Breiðdalsvík.
Deild sauðfjárbænda í Búnaðarsambandi Austur-Skaftfellinga.
Bjarni Sigjónsson, Fornustekkum, 781 Höfn.
Félag sauðfjárbænda í Vestur-Skaftafellssýslu.
Ólafur Steinar Björnsson, Reyni, 871 Vík Mýrdal.
Félag sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu
Ragnar Lárusson, Stóradal.
Félag sauðfjárbænda í Árnessýslu.
Jóhannes Sveinbjörnsson, Heiðarbæ l, 801 Selfoss.


Samþykktir Landssamtaka sauðfjárbænda
I. kafli. Almenn ákvæði

1. gr.
Samtökin heita Landssamtök sauðfjárbænda, skammstafað LS. Þau eru aðili að Bændasamtökum Íslands (BÍ). Heimili þeirra og varnarþing er á skrifstofu samtakanna.
2. gr.
Landssamtök sauðfjárbænda eru samtök sjálfstæðra svæðisfélaga sauðfjárbænda og deilda sauðfjárbænda innan búnaðarsambanda og gæta hagsmuna þeirra í hvívetna.
Aðildarfélög LS eru eftirtalin:
Félag sauðfjárbænda í Borgarfjarðarhéraði
Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu
Félag sauðfjárbænda í Snæfellsnes og Hnappadalssýslu
Félag sauðfjárbænda í Strandasýslu
Félag sauðfjárbænda í Vestur-Húnavatnssýslu
Félag sauðfjárbænda í Austur-Húnavatnssýslu
Félag sauðfjárbænda í Skagafirði
Félag sauðfjárbænda í Eyjafirði
Félag sauðfjárbænda í Suður-Þingeyjarsýslu
Félag sauðfjárbænda á Héraði og í Fjörðum
Félag sauðfjárbænda á Suðurfjörðum
Félag sauðfjárbænda í Vestur-Skaftafellssýslu
Félag sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu
Félag sauðfjárbænda í Árnessýslu
Deild sauðfjárbænda í Búnaðarsambandi Austur-Skaftafellssýslu
Deild sauðfjárbænda í Búnaðarsambandi Norður-Þingeyinga
Deild sauðfjárbænda í Búnaðarsambandi Kjalarnesþings
Deild sauðfjárbænda í Búnaðarsambandi Vestfjarða
Deild sauðfjárbænda í Búnaðarsambandi Austurlands
3. gr.
Félagar í einstökum aðildarfélögum sauðfjárbænda geta verið þeir einstaklingar og lögaðilar sem reka sauðfjárbú á lögbýlum þar sem eru að lágmarki 50 kindur á vetrarfóðrum, samkvæmt könnun LS. Þegar bú er rekið sem lögaðili skal félagsaðild annaðhvort bundin við lögaðilann eða þá sem að búrekstrinum standa. Bændum sem lenda í tímabundnu fjárleysi skal heimil áframhaldandi þátttaka í félaginu með fullum réttindum, hafi þeir búsetu á viðkomandi lögbýli. Aðrir sauðfjáreigendur geta verið aukafélagar í viðkomandi aðildarfélagi með málfrelsi og tillögurétti. Einungis fullgildir félagar skulu atkvæðisbærir þegar kemur til almennrar atkvæðagreiðslu meðal sauðfjárbænda.
4. gr.
Aðalfundur LS skal staðfesta aðild og samþykktir nýrra aðildarfélaga með minnst 2/3 hluta atkvæða aðalfundarfulltrúa, en stjórn LS staðfestir breytingar á samþykktum þeirra. Í héruðum þar sem sauðfjárbændafélög starfa ekki, geta búnaðarsambönd starfrækt innan sinna vébanda deildir sauðfjárbænda, sem eru aðilar að LS og hafa sömu skyldur og njóta sömu réttinda og félögin. Þær skulu hafa sérstaka stjórn, sem sér um að skrá félaga og halda árlega aðalfund. Heimilt er, ef aðalfundur búnaðarsambandsins og sauðfjárbændadeildarinnar samþykkir, að stjórn þess gegni jafnframt störfum stjórnar deildar sauðfjárbænda. Lágmarksfjöldi fullgildra félaga í aðildarfélagi skal vera 15.
Fyrir aðalfundi hvers árs skal ávallt liggja fullnægjandi félagaskrá samkvæmt ákvæðum í 4. grein samþykkta BÍ.
5. gr.
Aðalfundur LS getur með minnst 2/3 hluta atkvæða aðalfundarfulltrúa vikið aðildarfélagi úr LS ef samþykktir þess eða starfsemi er ekki í samræmi við lög LS eða ef það þykir óhjákvæmilegt af öðrum ástæðum.
6. gr.
Tilgangur LS er að gæta hagsmuna sauðfjárbænda á eftirfarandi hátt:
A. Að beita sér fyrir bættum kjörum sauðfjárbænda á öllum sviðum.
B. Að vera málsvari aðildarfélaga og einstakra félagsmanna og koma fram fyrir þeirra hönd.
C. Að vinna að sölumálum sauðfjárafurða á innlendum sem erlendum markaði með það að markmiði að auka verðmæti afurðanna.
D. Að vinna ötullega að mótun ræktunarstefnu í samvinnu við BÍ, þar með talin þátttaka í Fagráði.
E. Að stuðla að umhverfisvernd og skynsamlegri landnýtingu.
F. Að skapa tengsl og auka samstöðu framleiðenda til eflingar sauðfjárræktinni.
G. Að koma til móts við óskir neytenda um vöruval og vörugæði.
LS starfa í samráði við Bændasamtök Íslands í samræmi við verkaskiptasamning LS og BÍ.
.
7. gr.
Tekjur LS eru lögbundin hlutdeild þess í búnaðargjaldi, árlegt gjald af hverjum félagsmanni eftir ákvörðun aðalfundar og aðrar tekjur sem til falla. Heimilt er að greiða styrk til aðildarfélaganna eftir ákvörðun aðalfundar hverju sinni. Greitt skal til félaganna á fyrsta ársfjórðungi að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
a. Hafa sent fulltrúa á síðasta aðalfund LS.
b. Vera skuldlaus við LS eða hafa samið um skuld sína við stjórn LS.
c. Halda félagaskrá og senda eintak af henni til stjórnar LS.
d. Hafa haldið aðalfund á liðnu ári og sent stjórn LS greinargerð um hann.
Gjald sem ekki kemur til útborgunar vegna þess að félag fullnægir ekki settum skilyrðum skal renna til LS.
8. gr.
Samtökin skulu halda sem bestum tengslum við aðildarfélögin, m.a. með því að senda út fundargerðir til formanna aðildarfélaganna til dreifingar meðal stjórnarmanna og aðalfundarfulltrúa. Einnig skal stjórn LS senda fulltrúa stjórnar á aðalfundi aðildarfélaganna ef þess er óskað.

II. kafli. Aðalfundur

9. gr.
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum LS. Hann skal halda eigi síðar en í ágúst mánuði ár hvert. Aðalfund skal halda til skiptis í hverjum landsfjórðungi eftir því sem við verður komið.

Til aðalfundar skal boða með minnst 4 vikna fyrirvara á sannanlegan hátt. Í fundarboði skal aðildarfélögum tilkynntur frestur til að senda inn mál sem leggja á fyrir fundinn. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað og meirihluti kjörinna fulltrúa mættur. Fundargögn skulu berast formönnum aðildarfélaga í síðasta lagi viku fyrir aðalfund.

Á aðalfundi skulu eftirfarandi mál tekin fyrir:

1. Skýrsla stjórnar um starfsemi samtakanna frá síðasta aðalfundi.

2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu.

3. Gerð fjárhagsáætlunar.

4. Ákveða laun stjórnar.

5. Kosningar í stjórn og varastjórn.

6. Kosning fulltrúa á Búnaðarþing samkvæmt samþykktum BÍ.

7. Kosning endurskoðanda, skoðunarmanns og varamanna þeirra.

8. Önnur mál.

Aðalfundur kýs sér tvo fundarstjóra, sem stjórna fundinum og taka ákvörðun um málsmeðferð og atkvæðagreiðslur. Fundarstjórar tilnefna tvo fundarritara.

Í upphafi fundar skal kjósa kjörbréfanefnd, skipaða þrem mönnum. Hún fer yfir kjörbréf og leggur fram tillögur sínar áður en almennar umræður hefjast.

Á aðalfundi skulu eftirfarandi nefndir starfa:
1. Fjárhagsnefnd.
2. Allsherjar- og félagsmálanefnd.
3. Fagráðs- og sauðfjárræktarnefnd.
4. Umhverfis- og jarðræktarnefnd.
5. Markaðs- og kjaranefnd.
6. Framleiðslunefnd.
Heimilt er að sameina nefndir og kjósa aðrar ef ástæða er til.

10. gr.
Aukafundi skal halda þegar stjórn LS telur nauðsyn vera til svo og þegar 1/3 hluti aðildarfélaga krefst þess bréflega, enda hafi þau tilkynnt í hvaða tilgangi krafist er aukafundar. Skal fundur haldinn eigi síðar en 30 dögum eftir að krafan berst stjórninni í hendur og skal hann boðaður með minnst viku fyrirvara á sannanlegan hátt. Á aðal- og aukafundum gilda almenn fundarsköp í þeim atriðum sem meðfylgjandi reglur um starfshætti LS taka ekki til.
11. gr.
Hvert aðildarfélag kýs einn fulltrúa úr hópi fullgildra félagsmanna á aðal- og aukafundi LS fyrir fyrstu 50 fullgilda félagsmenn sína. Tvo fulltrúa séu fullgildir félagsmenn 51-100, þrjá menn séu fullgildir 101-200 og þannig áfram. Fjöldi fulltrúa miðast við félagaskrá 1. janúar og er atkvæðisréttur þeirra bundinn því að skráin hafi borist LS fyrir 1. mars. Aðal- og aukafundir skulu opnir til áheyrnar öllum félagsmönnum LS.
12. gr.
Kjörnir fulltrúar hafa einir atkvæðisrétt á fundum LS og ræður einfaldur meirihluti greiddra atkvæða úrslitum í afgreiðslu mála, nema þar sem samþykktir þessar mæla fyrir um aukinn meirihluta. Séu atkvæði jöfn í kosningu trúnaðarmanna skal hún endurtekin. Séu atkvæði enn jöfn skal hlutkesti ráða.
13. gr.
Stjórn LS er heimilt að boða formenn aðildarfélaga saman til fundar. Fundurinn skal vera stjórn til samráðs og ráðgjafar og er ályktunarhæfur sé meirihluti formanna á fundi, en stjórn er ekki bundin af ályktunum hans.
III. Kafli. Stjórn og starfsemi LS

14. gr.
Stjórn LS skipa fimm menn og fjórir til vara kjörnir úr hópi fullgildra félagsmanna samtakanna og ganga þeir úr stjórn á víxl. Kosning fer þannig fram: Fyrst skal kosinn formaður til þriggja ára beinni skriflegri kosningu óháð búsetu. Fái enginn meira en helming atkvæða skal kosið aftur bundinni kosningu á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hlutu. Því næst skulu kjörnir til þriggja ára stjórnarmaður og varamaður úr hverjum landsfjórðungi, þannig:
Vesturland og Vestfirðir frá Hvalfjarðarbotni að Hrútafjarðarbotni, fulltrúi næst kjörinn árið 2005.
Norðurland frá Hrútafjarðarbotni að Gunnólfsvíkurfjalli, fulltrúi næst kjörinn árið 2004.
Austurland frá Gunnólfsvíkurfjalli að Skeiðará, fulltrúi næst kjörinn árið 2007.
Suðurland frá Skeiðará að Hvalfjarðarbotni, fulltrúi næst kjörinn árið 2006.
Fulltrúar úr viðkomandi landsfjórðungi mynda uppstillingarnefnd. Hún hefur tvo valkosti hvað varðar uppstillingu:
a. Stilla upp fjórum mönnum úr sínum fjórðungi sem kjósa skal á milli. Varamaðurinn er síðan kosinn úr þeim þremur sem eftir eru.
b. Koma sér saman um einn aðalmann og einn varamann og skulu þeir þá sjálfkjörnir.

Kjörtímabil stjórnarmanna er þrjú ár og mega þeir ekki sitja lengur í stjórn en tvö kjörtímabil samfellt. Verði formaður kosinn úr hópi stjórnarmanna, skerða þau ár sem hann starfaði sem almennur stjórnarmaður ekki starfstíma hans sem formanns, sem er að hámarki þrjú kjörtímabil. Falli formaður frá eða verði að hætta störfum tekur varaformaður sæti hans fram að næsta aðalfundi, en þá skal kosinn formaður til loka kjörtíma fráfarandi formanns. Seta hans þann tíma bætist við seturétt í þrjú kjörtímabil. Falli stjórnarmaður frá eða verði að hætta störfum í stjórninni skal varamaður hans taka sæti sem aðalmaður út kjörtímabilið en nýr varamaður kosinn á næsta aðalfundi til loka kjörtímabils. Taki varamaður sæti í stjórn, bætist sá tími við seturétt hans í tvö kjörtímabil. Stjórn skal að loknum aðalfundi kjósa úr sínum hópi varaformann, ritara og gjaldkera sem er prókúruhafi samtakanna, sjá þó 15. gr.
15. gr.
Stjórn LS fer með mál samtakanna milli aðalfunda og fylgir ályktunum þeirra eftir. Heimilt er stjórn að ráða framkvæmdastjóra er annist daglega stjórn samtakanna í samræmi við ákvarðanir stjórnar. Framkvæmdastjóri er prókúruhafi samtakanna. Stjórn getur skipað starfsnefndir í einstaka málaflokka sem gera þá tillögur til aðalfundar sé það talið henta.
16. gr.
Formaður boðar stjórnarfundi. Stjórnarfundir skulu haldnir svo oft sem þurfa þykir. Í fjarveru stjórnarmanns skal kalla til varamann. Formaður stýrir fundum stjórnar og er málsvari samtakanna út á við. Stjórnarfundi skal einnig boða ef tveir stjórnarmenn krefjast þess, enda hafi þeir tilkynnt formanni þá kröfu sína og getið þess í hvaða tilgangi beðið er um fundinn. Á stjórnarfundum skal einfaldur meirihluti ráða úrslitum mála og falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns. Stjórnin ritar fundargerð. Stjórnarfundur er lögmætur sé meirihluti stjórnar á fundi.
17. gr.
Aðalfundur skal á ári hverju kjósa einn löggiltan endurskoðanda LS og annan til vara. Þá skal kjósa einn skoðunarmann reikninga og annan til vara. Reikningsár samtakanna er almanaksárið.
18. gr.
Samþykktum þessum má aðeins breyta á aðalfundi LS og þarf til þess minnst 2/3 hluta atkvæða aðalfundarfulltrúa. Tillögur til lagabreytinga skulu sendar stjórn í tæka tíð og sendar til aðildarfélaga með fundarboði.
19. gr.
LS hættir störfum ef það er samþykkt í formi lagabreytinga. Eignir samtakanna skulu þá afhentar Bændasamtökum Íslands er ráðstafa þeim í þágu þeirra bænda er sauðfjárrækt stunda.

Samþykkt á aðalfundi LS árið 2004


Starfshættir aðalfunda LS

1. Formaður setur fund og stjórnar kosningu kjörbréfanefndar og stýrir fundi þar til kosning fundarstjóra hefur farið fram.

2. Að afloknum kosningum starfsmanna, flutningi skýrslu stjórnar, framlagningu ársreikninga og almennum umræðum skulu skipaðar starfsnefndir fundarins samkv. 9. gr. II. kafla. Stjórn LS skipar fulltrúum í nefndir og ákveður hver er nefndarformaður. Í hverri nefnd skulu sitja að lágmarki þrír fulltrúar. Enginn má eiga sæti í fleiri en einni nefnd. Stjórnarmenn LS eru undanþegnir setu í nefndum, en starfa með þeim eftir því sem þurfa þykir. Fulltrúar sem óska eftir setu í einhverri sérstakri nefnd komi þeim óskum á framfæri við stjórn minnst tveimur dögum fyrir aðalfund.

3. Öll mál sem taka skal til meðferðar á fundinum skulu komin í hendur stjórnar LS eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund. Þó getur fundurinn samþykkt að taka fyrir mál sem síðar koma fram.

4. Starfsnefnd lætur uppi álit sitt og skal fjölrita það og útbýta því meðal fulltrúa áður en málið er tekið til umræðu. Nefndarálit skal undirritað af nefndarmönnum og tilgreint hver sé framsögumaður. Stjórn LS getur fengið sérfræðinga til að starfa með nefndum ef hún telur það nauðsynlegt.

5. Fundarritarar færa fundargerð undir stjórn fundarstjóra. Auk tveggja ritara tilnefndra úr hópi fulltrúa skal stjórn ráða fundinum tölvuritara. Fundargerð skal dreifa til fulltrúa svo fljótt sem kostur er, eftir að fundi lýkur. Stjórn er heimilt að hljóðrita aðal- og formannafundi, enda sé það tilkynnt í upphafi fundar.

6. Málum sem lögð eru fyrir fundinn skal vísa til nefnda umræðulaust. Fundarstjóra er þó heimilt að leyfa flutningsmanni að reifa málið með stuttri ræðu. Eftir að nefndir hafa skilað áliti skal fara fram umræða um hvert mál. Komi fram fyrirspurnir til stjórnar eða starfsmanna LS má fundarstjóri ákveða umræðu um þær. Sá sem fyrirspurn er beint til, hefur sama rétt til ræðutíma og framsögumenn nefnda.

7. Skylt er fulltrúum að sækja alla fundi, nema nauðsyn banni. Varafulltrúar taka sæti aðalfulltrúa í forföllum þeirra með samþykki fundarstjóra.

8. Stjórn LS ræður fundinum skrifstofustjóra. Skrifstofustjóri fundarins er m.a. fundarstjóra til aðstoðar. Hann annast m.a. skráningu fundarskjala, umsjón með skrifstofuvinnu vegna fundarhaldsins, útgáfu og dreifingu fundarskjala. Þá skal hann í samráði við stjórn hlutast til um nauðsynlega gagnasöfnun vegna afgreiðslu þeirra mála er berast á tilsettum tíma fyrir fundarsetningu.

Samþykkt á aðalfundi LS árið 2004


 

 Leit í starfsfólk
Sameiginlegur vefur