|
Stofnun matvælafyrirtækja
Vakin er athygli á námskeiðum sem Rannsóknarþjónustan Sýni ehf. kemur til með að halda á næstunni í stofnun matvælafyrirtækja.
Matvælaframleiðsla er undirstöðuatvinnugrein á Íslandi og eru kröfur til matvælaframleiðslu margvíslegar. Námskeiðinu er ætlað að svara hinum ýmsu spurningum varðandi lög og reglugerðir, innra eftirlit, vöruþróun og umbúðamerkingar, styrkjaumhverfið o.fl.
Markhópar eru : Sprotafyrirtæki, einstaklingar í leit að nýjum leiðum, matvælaframleiðendur í héraði, ferðamannaþjónusta og aðrir sem hafa áhuga á matvælaframleiðslu.
Á námskeiðinu verður farið í eftirfarandi:
• Lög og reglugerðir sem gilda um matvælaframleiðslu –matvælaeftirlit á Íslandi. • Gæðamál, innra eftirlit og úttektir. • Öryggi matvæla, hreinlæti og þrif. • Húsnæði, innréttingar og þrifavænleg hönnun. • Vöru-og hráefnaþekking. Innkaup og kröfur til birgja. • Val á umbúðum og umbúðamerkingar. • Vinnuvernd og vellíðan á vinnustöðum. • Umhverfi matvælafyrirtækja og mikilvægi samtaka fyrirtækja. • Styrkumsóknir og möguleika fyrirtækja til styrkja t.d. vegna vöruþróunar.
Kennarar á námskeiðinu verða: Ráðgjafar hjá Sýni og Ágúst Sindri Karlsson hrl., Dr. Jakob Kristjánsson og Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Tímalengd námskeiðs: 40 kennslustundir
Tími námskeiðs: 25. og 26. febrúar kl.8:30-16:30 og 11. og 12. mars kl. 8:30-16:30
Skráning: í síma 512-3389 eða í netfangið matvaelaskolinn@syni.is
Staður: Matvælaskólinn hjá Sýni Lynghálsi 3, 110 Reykjavík
Verð: 50.000 kr - Innifalið í verði eru námskeiðsgögn og veitingar - Munið eftir styrkjunum úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!!
Námskeiðið er niðurgreitt af Starfsmenntaráði
Til baka
|