|
Hrossaræktarfundir
Á næstu vikum verða haldnir almennir fundir um málefni hrossaræktarinnar víðs vegar um landið. Við viljum vekja sérstaka athygli á fundinum sem verður haldinn á Hvanneyri þriðjudaginn 9. mars og hvetjum fólk til að mæta. Allir fundirnir hefjast kl. 20:30.
Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
Þriðjudaginn 2. mars. Svaðastaðahöllinni, Sauðárkróki. Miðvikudaginn 3. mars. Hlíðarbæ, Eyjafirði. Fimmtudaginn 4. mars. Sjálfstæðissalnum, Blönduósi.
Mánudaginn 8. mars. Félagsheimili Fáks, Reykjavík. Þriðjudaginn 9. mars. Hvanneyri, Borgarfirði. Miðvikudaginn 10. mars. Félagsheimili Sleipnis, Selfossi.
Mánudaginn 15. mars. Gistihúsinu, Egilsstöðum. Þriðjudaginn 16. mars. Stekkhól, Hornafirði.
Frummælendur verða Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt, Sigrún Ólafsdóttir formaður Félags tamningamanna og fulltrúi í fagráði í hrossarækt og Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands.
Til baka
|