Landbunadur.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst
 
 
Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
 
 
Garðyrkja/Ylrækt
Upplýsingar
Gróðurhús
Fræ og smáplöntur
Afskorin blóm
Pottaplöntur
Matjurtir
Geymsla matjurta
Sjúkdómar og meindýr
Vistvæn ræktun
 
 
Bændasamtökin
Forrit fyrir bændur
Greiðslumark
Tölur
Útgefið efni
Þéttbýlið og sveitin
Lög og reglugerðir
Eyðublöð
Landbúnaðarnetföng
 
Búnaðarsambönd
Búgreinasambönd
 
Innskráning
 
Vefpóstur BÍ
 
Vefpóstur BSB
 

Jólastjarna; um afbrigði

Jólastjörnur eru vinsælasta pottaplantan á Íslandi og seljast árlega milli 60 og 70.000 plöntur. Jólastjarna kom fyrst í ræktun hér um 1965 og hefur náð miklum vinsældum. Algengustu afbrigði hér á landi í dag eru Sonora og Lilo.

Millennium

'Millenium' hefur aðra kjördaglengd til blómgunar en önnur afbrigði og byrjar að mynda blóm strax við 12 tíma dag. Hún blómgast 7 - 8 vikum eftir að kjördaglengd er náð. Hún er mjög birtu kræf og gengur illa að fá góðan lit á háblöðin nema með góðri lýsingu. Sein ræktun brýtur illa. Henni hættir til að vera með mislangar greinar en CCC úðun lagar það. Við ræktun án toppunar myndar hún ekki hliðargreinar ef pottað er seint. Millennium er álíka kröftug og hvít Regína. Við snemmræktun þarf vökvun einu sinni til tvisvar með CCC til að fá hana þétta en einnig þarf að byrja myrkvun fyrr til að stöðva lengdarvöxtinn.Mælt ermeð snemmræktun hennar í Þýskalandi og gjarna hálfblómstruð. Hún hentar því vel sem fyrstu stjörnur, bæði ótoppuð og toppuð. Hún er með kröftugt rótarkerfi og er ekki kvillasöm. Liturinn er góður og ekki má gleyma nafninu ' Millenium' .


Galactica

Fischer er með nýtt afbrigði , 'Galactica', sem er í tilraunum 1999. Þetta afbrigði er hálfri viku seinna en 'Millenium', brýtur auðveldar og er með jafnar greinar. Álíka kröftug og ´Millenium´ en með styttri blaðstilk. 'Galatica' þarf eins og 'Millenium' tíða úðun með CCC eða vökvun (1-2 sinnum) til að verða þétt. Endingin er í við betri.




Nova

Annnað nýtt Fischer-afbrigði sem er í tilraunum er 'Nova', sem er gefin upp sem 'Freedom' sem brjóti vel. Blaðstilkurinn er langur á 'Nova', eins og á 'Cortez' og 'Malibu'. Hún blómgast um einni viku seinna en 'Millennium' eða tveim dögum seinna en 'Freedom'. 'Nova' er "slowstarter", sem vex hægt í byrjun, en heldur vextinum áfram allt til loka.. Þörf fyrir CCC er því lítil.






De Luxe
'De Luxe' frá Dümmens er nýtt dökk-blaðaafbrigði sem var prófað fyrst 1998 og leit vel út. Það er u.þ.b. hálfri viku seinna en 'Millenium'. Það braut vel 1998 með jöfnum þróttmiklum greinum en í ár hefur það brotið misvel og plönturnar reynst þróttminni og ójafnari en Dummens segja það stafa af hart klipptum móðurplöntum. Afbrigðið er þétt og margir hafa komist af án CCC. Háblöðin eru sveigð upp og líkist helst 'Steffi'. Stendur vel.




Royal Red

Frá Dümmen, 'Royal Red' sem getur verið athygliverð. 'Royal Red' blómgast eftir 7,5-8 frá byrjun myrkvunar. Brýtur enn betur en´De Luxe' og er nokkuð algeng í ræktun í Svíþjóð. Blaðstilkurinn er stuttur sem gefur plöntunni fallegra útlit. 'Royal Red' er kröftug og jafnvel kröftugri en 'Millenium'. Því þarf að CCC-vökva hana og byrja myrkvun snemma eftir pottun til að hemja lengdarvökst ef pottað er snemma árs. Afbrigðið hentar bæði sem toppuð og ótoppuð og stendur vel.






Coco 2000

Dümmen hefur sett á markaðinn aftur afbrigðið 'Coco', sem er 'Freedom'-gerð og nefnist nú 'Coco 2000'. Hún er í ræktun á nokkrum stöðum í Svíþjóð og lítur vel út. Hún brýtur vel og er þétt og að auki fljót.




Christmas Eve

Selecta Klem er með afbrigðið 'Christmas Eve', sem er með 7,5-8 vikna blómgunartíma. Afbrigðið er dökkblaða og endist svipað og 'Lilo', en er blómríkari. Háblöðin eru bylgjótt. Ræktunarhitastig 17-18°C. Er í ræktun í smáum stíl til reynslu.







Litaðar stjörnur

Hvítum afbrigðum hefur fjölgað en þau má lita í mismunandi litum. Óháð lit er einnig í tísku að nota gull-glimmer á stjörnurnar. Lituninn fer fram þegar stjarnan er tilbúin til sölu, veljið vatnsleysanleg a lakkmálningu, hálfmatt glært er notað sem lím fyrir glimmerinn. Ekki ætti að "mála" í sól, einnig eru þær viðkvæmar fyrir sól fyrst á eftir.




Tvílitar stjörnur

Bleikar eru lítið ræktaðar en tvílitar (skræpóttar) eins og 'Marblestar' og hrokkinblaða 'Silverstar red' ganga vel í Svíþjóð. Ný á næsta ári er hrokkinblaða afbrigði , bleikt frá Fisher sem nefnist 'décor´. Einnig er 'Sonora Jingle' (mynd) með áberandi hvítum flekkjum. Síðan kemur afbrigðið 113-99 frá Ecke sem er lilla og er flott með silfur-glimmer. (mynd).







Fyllt jólastjarna

Afbrigðið 'Winter Rose' sker sig úr sem fyllt jólastjarna sem stendur mjög lengi. Í Svíþjóð eru í ræktun 10.000 stykki og í Evrópu alls 270.000 plöntur 1999. Á næsta ári verða fleirri litaafbrigði til. Eftirtektarverðust er "hvíta vetrarrósin" eins og hún er kölluð því það má ábyrgjast að hún standi frá nóvemberbyrjun fram á þrettándann. Hún erræktuð í þremur gerðum; ótoppuð í 6 sm pott, toppuð í 11 sm og 3 plöntur í 13 sm pott. Hún er eingöngu seld í gjafaumbúðum.
þýtt úr sænsku og staðfært
Magnús Ágúst Ágústsson
maa@bondi.is



 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Landbúnaðarmál

Alifuglarækt

Búrekstur/Hagfræði

Bútækni

Byggingarþjónusta

Garðyrkja/Ylrækt

Hlunnindi

Hrossarækt

Jarðrækt/Fóðuröflun

Lífrænn landbúnaður

Loðdýrarækt

Nautgriparækt

Sauðfjárrækt

Svínarækt

Annað


Athyglisverðir tenglar

dkBúbót handbók

Eyðublöð

Samningar

Forrit fyrir bændur

Greiðslumark

Lög og reglugerðir

Tölur og gjaldskrár

Útgefið efni

Þéttbýlið og sveitin