|
Rekstrarráðgjöf
Búnaðarsamtök Vesturlands hafa um árabil boðið bændum upp á alhliða fjármálaráðgjöf í tengslum við búreksturinn. Í því felst rekstrargreining, rekstraráætlanagerð, leiðir til endurfjármögnunar, aðstoð við verðmat búsins o.fl. Undanfarna mánuð hafa rekstrarskilyrði bænda breyst til hins verra og hafa Bændasamtök Íslands því ráðist í aðgerðir til að bregðast við því. Þá hefur verið lögð mikil áhersla á að efla á rekstrarraðgjöf búnaðarsambanda með þéttari samvinnu milli þeirra sem starfa við rekstrarráðgjöf hjá búnaðarsamböndum og Bændasamtökunum. Þeir bændur sem telja sig þurfa ráðgjöf vegna hinna sérstöku aðstæðna sem nú ríkja á fjármálamarkaði eru hvattir til að hafa samband sem allra fyst. Símanúmer Búnaðarsamtaka Vesturlands er 437 1215.
Nánari upplýsingar gefa:
Sigríður Jóhannesdóttir beinn sími 431 5012, netf: sjo@bondi.is Jenny Johansen, beinn sími 431 5017, netf: jej@bondi.is
Til baka
|