|
Minnum á námskeiðið mjaltaþjónar og bætt mjólkurgæði
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Samtök Afurðastöðva í Mjólkuriðnaði og er ætlað bændum sem nota mjaltaþjóna. Fjallað verður um mjaltir, grunnkerfi mjaltaþjónanna og erlenda reynslu af ólíkum mjaltaþjónum. Sérstök áhersla verður lögð á mjólkurgæði, m.a. frjálsar fitusýrur (FFA) í mjólk, tengsl þeirra mjólkurgæði og áhrif of hárra gilda á vinnslu mjólkur og mjólkurafurða. Ennfremur farið yfir mikilvægi þess að horfa til efnainnihalds mjólkurinnar og tengsl við afkomuna. Þá verða kynntar breytingar á mjólkurgæðakröfum sem tóku gildi 1. febrúar sl.
Námskeiðið verður haldið á Hvanneyri þriðjudaginn 16. mars nk. kl 10:00-16:30 í Austurstofu í Ásgarði á Hvanneyri. Fyrirlesarar verða Snorri Sigurðsson LbhÍ, Hans Egilsson SAM og Jón K. Baldursson, MS.
Verð: 11.800 kr (kennsla, gögn og veitingar). Skráningar: á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000. Fram komi nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og sími. Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2800 kr (óafturkræft) á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590. Skrá nafn þátttakanda í skýringar og senda kvittun á endurmenntun@lbhi.is
Til baka
|