bondi.is
Búnaðarsamtök Vesturlands
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
 
 
Bréf til bænda
Ráðgjöf
Upplýsingar um BV
Fundargerðir
Eyðublöð
Fyrir landeigendur
Átaksverkefni
Barnasíða
Myndir
Aðalsíða
 
 
Vefpóstur BV

Búnaðarsamtök Vesturlands | 07/23/2010
Seinni héraðssýning kynbótahrossa á Vesturlandi 2010
Seinni héraðssýning kynbótahrossa á Vesturlandi verður að Mið-Fossum, Borgarfirði dagana 3.-6. ágúst næstkomandi.

Tekið er við skráningum hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands dagana 26. - 28. júlí í síma 437-1215 frá kl. 9:00 til 16:00. Við skráningu þarf að koma fram númer, nafn og uppruni hrossanna, nafn og kennitala knapa og sími. Sýningargjald á hvert hross er kr. 14.500,- fyrir fulldæmd hross en kr. 10.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikadóm eftir reglum þar um.

Sýningargjöld skal greiða á skrifstofu BV á Hvanneyri eða á reikning nr. 0354-26-100, kt.: 461288-1119. Ef greitt er í gegnum netbanka þarf að senda greiðslukvittun á netfangið bv@bondi.is. Nauðsynlegt er að fram komi nafn og númer hrossa sem greitt er fyrir. Ef ekki er greitt í gegnum netbanka, er mikilvægt að faxa greiðslukvittun á númerið 437-2015. Endurgreiðsla sýningargjalda kemur aðeins til greina séu forföll tilkynnt áður en dómar hefjast.

Hafi greiðsla ekki borist fyrir hádegi 29. júlí verður viðkomandi hross ekki skráð á sýninguna.

Reglur um kynbótasýningar má nálgast í heild sinni á vef BÍ, www.bondi.is undir hrossarækt.




Til baka

 


 

Sameiginlegur vefur