|
|
Heimsókn í sveitina
Bændasamtök Íslands hafa milligöngu um heimsóknir grunnskóla- og leikskólabarna á sveitabæi. Í vor munu ábúendur fjögurra bæja í nágrenni Reykjavíkur, auk eins í Eyjafirði, taka á móti börnum í heimsókn. Kennarar barna í 1. - 4. bekk á suðvesturhorninu og í Eyjafirði fengu sent bréf í mars með upplýsingum þar að lútandi. Hið sama gildir um stjórnendur leikskóla.
Upplýsingar um bæina má sjá hér á síðunni.
Greiða þarf ábúendum kr. 250-400 (viðmiðunarverð) fyrir hvern gest að starfsfólki undanskildu. Vinsamlega spyrjið bóndann um upphæðina um leið og þið pantið. Best er að umsjónarmaður hópsins sjái um að safna saman í þessa greiðslu áður en komið er á staðinn. Umsjónarmaður hópsins fyllir út heimsóknareyðublað og afhendir það bónda áður en heimsókn lýkur. Heimsóknareyðublaðið er á heimasíðu BÍ og það er fáanlegt hjá viðkomandi bændum. Þess má geta að um virðisaukaskattsskyldar greiðslur er að ræða.
Kennarar eru beðnir að hafa sjálfir samband við bæina og sammælast um dag- og tímasetningar heimsókna. Þar sem þessar heimsóknir hafa verið mjög eftirsóttar eru þeir kennarar sem áhuga hafa hvattir til að hafa samband við bæina sem fyrst.
Það er óþarfi að taka með sér drykkjarföng. Gestum verður boðið upp á mjólkurdrykki í boði MS (höfuðborgarsvæðið) og Norðurmjólkur (Eyjafjarðarsvæðið) þegar nestið verður tekið upp.
Eins og sjá má er einkum verið að höfða til skóla á Suð-vesturhorni landins og á Eyjafjarðarsvæðinu.
Bæirnir eru:
Grjóteyri í Kjósarhreppi
Miðdalur í Kjósarhreppi
Bjarteyjarsandur á Hvalfjarðarströnd
Stóri-Dunhagi í Hörgárbyggð
Hraðastaðir í Mosfellsdal
Leiðbeiningar vegna sveitaheimsókna 2006
Eyðublað vegna sveitaheimsókna 2006 Þeir sem heimsækja sveitina eru vinsamlega beðnir að fylla þetta út og skila ábúendum í lok heimsóknar. |
|
|