Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Jarðrækt/Fóðuröflun
- Ráðgjafinn
Bændasamtökin
Forrit fyrir bændur
Greiðslumark
Tölur
Útgefið efni
Þéttbýlið og sveitin
Lög og reglugerðir
Eyðublöð
Landbúnaðarnetföng
Búnaðarsambönd
Búgreinasambönd
Innskráning
Vefpóstur BÍ
Vefpóstur BSB
Þroski túngrasanna vorið 2003
Á næstu vikum verður lagður grunnur að gæðum heyforðans á næsta vetri. Einn af þýðingarmeiri þáttum er varða heygæðin er val á réttum sláttutíma. Úr jarðræktartilraunum er allmikið vitað um samhengi þroskastigs (meltanleika) helstu túngrasa og fóðurgildis. Ymsir ytri þættir s. s. jarðvegur, áburður og veðurfar hafa einnig áhrif á þetta samhengi. Með þeirri hraðvikru greiningartækni á fóðri sem nú er völ á ætlum við að gera einfalda tilraun sem við vonum að geti orðið til þess að vekja athygli bænda grasþroska, fóðurgildi og sláttutíma og auðvelda þeim að fylgjast með grasþroskanum.
Þetta verður gert með því að birta vikulega hér á vefnum upplýsingar um mældan
meltanleika, orkugildi
og
prótein
í grassýnum sem tekin verða á þremur stöðum á landinu, -
Hvanneyri, Möðruvöllum og Stóra Ármóti, -
tvö sýni á hverjum stað í hvert sinn.
Annarsvegar sýni af nýrækt og hinsvegar af gamalræktuðu túni. Sýnin verða tekin 2, 10, 16, 23 og 30. júní. Til hliðsjónar verða einnig birtar upplýsingar um grashæð þegar sýnið er tekið og áburðartíma. Niðurstöður mælinganna verða birtar 2-3 dögum eftir töku sýnanna.
1) Áburðartegund: Fjölgræðir 6
2) Áburðartegund: Fjölgræðir 2
3) Áburðartegund: Græðir 6 (22.4) 340 kg/ha og (11.5) 290 kg/ha eða samtals 630 kg/ ha.
Ath: Fóðurgildismælingu á grasi í sprettu frá þremur stöðum landsins ber að líta á sem vísbendingu sem bændur geta haft til hliðsjónar í sínum ákvörðunum.
Landbunadur.is