|
|
Hagaskjól fyrir hross
Hagaskjól fyrir hross má útbúa á ýmsan hátt. Þau þurfa þó að vera þannig úr garði gerð að þau veiti raunverulegt skjól í ríkjandi vindáttum á viðkomandi stað. Sums staðar getur hentað að ýta upp jarðvegsgarði og græða hann upp. Slíkur garður þarf að ná að minnsta kosti 2,5 metra hæð fullsiginn. Annars staðar hentar betur að byggja skjól úr timbri. Einna einfaldasta gerðin er þá þriggja-arma skjólveggur sem byggður er á öfluga staura. Best er að nota gamla síma- eða raflínustaura sem reknir eru a.m.k. 1,2 – 1,5 metra í jörðu. Gott ráð er að bora fyrir staurunum með 30 cm breiðum jarðvegsbor og púkka möl að staurunum þegar búið er að stinga þeim í holurnar.
Hægt er að sækja um jarðabótaframlag út á hrossaskjól. Til þess að skjólveggurinn uppfylli reglur sem settar hafa verið um slíkt framlag þarf hæð hans yfir yfirborð jarðvegs að vera a.m.k. 2,5 metrar. Staurarnir þurfa því að standa a.m.k. 2,5 metra upp úr jörðu og útlits vegna er sjálfsagt að hafa þá alla jafn háa.
Þegar búið er að ganga frá staurunum er klætt á þá með timbri, t.d. með borðum 25 x 100 mm eða 25 x 125 mm og u.þ.b. 30 – 40 mm rifur hafðar á milli borðanna til þess að vindurinn síist í gegnum vegginn. Best er að nota gagnvarið timbur í klæðninguna en það dugar einnig að bera karbolíntjöru á það. Karbolíntjaran kemur að verulegu leyti í veg fyrir að hrossin nagi timbrið.
Gisklæddur veggur gefur mun betra skjól heldur en þéttklæddur veggur af sömu hæð. Sérstaklega gætir skjóls lengra út frá gisklædda veggnum og vindsveipir myndast oft hlé- megin við þéttklædda veggi. Af þeim sökum hentar betur að klæða hrossaskjól með timbri heldur en bárujárnsplötum. Meðfylgjandi teikning sýnir hagaskjól af umræddri gerð.
Hér má ná í teikningu af hrossaskjólinu á pdf- formi
|
|
|