|
|
Útgáfu- og kynningarsvið hefur það fjölþætta hlutverk að annast miðlun hvers konar upplýsinga og fræðslu sem eflir fagþekkingu bænda og rekstrarhæfni og styrkir stéttarvitund þeirra og samstöðu, jafnframt því sem skilningur almennings á íslenskum landbúnaði og gildi hans fyrir þjóðarbúið verði aukinn. Í þessu skyni munu Bændasamtök Íslands annast útgáfu á margskonar faglegu upplýsingaefni fyrir bændur, en jafnframt stunda öfluga kynningar- og útgáfustarfsemi til að kynna málefni landbúnaðar.
|
|
|