|
|
Verðlagsgrundvöllur og framleiðslukostnaður
Bændasamtök Íslands auglýsa verð á þeim búvörum, sem Verðlagsnefnd búvara ákveður verð á.
Verðlagsnefnd búvara hefur ákveðið breytingu á verði viðmiðunarmjólkur frá framleiðendum. Frá og með 1. janúar 2008 er lágmarksverð til framleiðenda 49,96 kr/lítra. Frá og með 1. janúar 2008 er verð á hverja fitu- og próteineiningu eftirfarandi:
| Efnaþáttur: | Verð á efnaþátt: | Verð á fitu- og próteineiningu: |
| Fita | 12,4900 kr | 3,1225 kr/ein |
| Prótein | 37,4700 kr | 11,1851 kr/ein |
Verðlagsgrundvöllur kúabús:
Verðlagsnefnd búvara semur einnig verðlagsgrundvöll kúabús. Nýjasta verðlagsgrundvöllinn má nálgast hér í pdf-skjali:
* Verðlagsgrundvöllur desember 2007
* Verðlagsgrundvöllur september 2004
Framleiðslukostnaður sauðfjárafurða:
Verðlagsgrundvöllur sauðfjárbús frá 2. mars 1998 féll úr gildi 1. september 1998. Landssamtök sauðfjárbænda hefur heimild til að gefa út viðmiðunarverð á sauðfjárafurðum samkvæmt lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, nr. 99/1993: Framleiðslukostnaður sauðfjárafurða
Verðlagsnefnd búvara skal samkvæmt lögum nr. 99/1993, meta framleiðslukostnað sauðfjárafurða.
Engin opinber afskipti eru af verðlagningu annarra afurða til bænda.
|
|
|