Landbunadur.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst
 
 
Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
 
 
Bændasamtökin
Félagssvið
Ráðgjafarsvið
Útgáfa og kynning
- Útgefið efni
Bændablaðið
Freyr
Handbók bænda
Hagtölur landb.
Icelandic Food
Litaveggspjöld
Úrvalsfatnaður
Lógó
Margmiðlunardiskur
Vefurinn
- Þéttbýlið og sveitin
Myndlist á Búnaðarþingi
Dagur með bónda
Fræðsluefni
Sveitaheimsóknir barna
Vistforeldrar
Ferðaþjónustubæir
Fjár- og stóðréttir
Tölvudeild
 
 
Landbúnaðarnetföng
 
Búnaðarsambönd
Búgreinasambönd
 
Innskráning
 
Vefpóstur BÍ
 
Vefpóstur BSB
 
 

Vistforeldrar


Landsamtök vistforeldra í sveit
Landssamtökin vistforeldrar í sveit eru samtök fólks sem tekur að sér börn eða einstaklinga til vistunar gegn gjaldi. Er þá um að ræða sumardvalir, fóstur til lengri eða skemmri tíma, helgardvalir o.fl.

Vistforeldrar búa víða um land. Þau hafa sótt námskeið Landssamtaka vistforeldra í sveitum (LVS), og Endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Félagsmenn eru tilbúnir til að vista börn allt frá einni viku og upp í þrjá mánuði í sumardvöl. Mörg heimilin taka börn í skammtímafóstur.

Vistforeldrar taka við börnum frá einstaklingum jafnt sem félagsmálastofnunum. Ekki er tekið við fleiri börnum en fjórum í senn á hvert heimili. Vistforeldrar bjóða einnig upp á vistun fyrir fatlaða í lengri eða skemmri tíma.


Stjórn

Formaður:
Eva Dögg Þorsteinsdóttir (kosin 2007)
Garðakoti
871 Vík í Mýrdal.
Sími: 4871441, e-mail: eva@eva.is

Gjaldkeri:
Kristbjörn Steinarsson (kosin 2005)
Hraunsmúla
311 Borgarnesi
Sími: 4356641, 8626232, e-mail: hraunsmuli@simnet.is

Ritari:
Stefanía Hjördís Leifsdóttir (kosin 2006)
Brúnastöðum
570 Fljótum
Sími: 4671020, fax.4671024, e-mail: brunst@krokur.is

Varastjórn
Sigurður I. Sigurðsson (kosin 2005), Ásta Ólafsdóttir (kosin 2006), Þorsteinn Hafsteinsson (kosin 2007).

Búnaðarþingsfulltrúi: Eva Dögg Þorsteinsdóttir, formaður.

Þeim sem vilja fá nánari upplýsingar er bent á að snúa sér til Halldóru Ólafsdóttur, sími 563 0300.


Bæir sem taka börn til sumardvalar:

Ártún, 861 Hvolsvöllur
Húsráðandi er Halla Bjarnadóttir og á bænum eru þrjú börn á aldrinum 7-13 ára. Um 17 kílómetrar eru á Hvolsvöll en næsti flugvöllur er á Hellu. Á bænum eru 30 kýr, 160 ær, 40 hross, tveir hundar og einn köttur. Símanúmer hjá húsráðanda er 487-5191.

Baugsstaðir 3, 801 Selfoss
Húsráðendur eru Ólafía Guðmundsdóttir og Þórarinn Siggeirsson sem eiga þrjú börn en eitt þeirra, Sjöfn, 21 árs, býr á bænum. Frá bænum eru 20 kílómetrar inn á Selfoss og sex kílómetrar inn á Stokkseyri. Á Baugsstöðum 3 eru fimm kanínur, 1 hundur, sex hestar, heimalingar og vonandi hænuungar. Símanúmer hjá húsráðendum eru 565-5353 og 862-5253.

Brúarholt, 531 Hvammstangi
Húsráðendur eru Jón Guðbjörnsson og Oddný Jónsdóttir sem eiga tvær dætur, eina sjö ára og aðra tíu ára gamla. Bærinn er mitt á milli Staðarskála og Hvammstanga um tvo kílómetra frá þjóðveginum. Á bænum eru 300 kindur, fjórir hestar, tveir hundar og tvær kisur. Símanúmer hjá húsráðendum eru 451-2446 og 849-0168.

Miðkot, 861 Hvolsvöllur
Húsráðendur eru Ásdís Kristinsdóttir og Þórir Ólafsson sem eiga uppkomin börn. Miðkot er í Landeyjum um 18 kílómetra frá Hvolsvelli. Á bænum eru kindur, heimalingar, hestar, hundur og kisur. Símanúmer hjá húsráðendum er 487-8542.

Arnbjargarlækur, 311 Borgarnes
Húsráðendur eru Guðrún Jónsdóttir og Davíð Aðalsteinsson sem eiga uppkomin börn. Ekið er um Borgarnes og farið yfir Norðurárbrúnna hjá Baulu. Ekin Borgarfjarðarbrautin þangað til komið er að vegi númer 522. Á Arnbjargarlæk eru rúmlega þrjú hundruð kindur og margir hestar en þar af eru tveir barnahestar. Símanúmer hjá húsráðendum er 435-1275 og 435-1575.


Hér undir er að finna fundargerðir og samþykktir Landssamtaka vistforeldra í sveitum:

Samþykktir Landssamtaka vistforeldra í sveitum


Fundargerðir 2008
- Stjórnarfundur 8. janúar 2008
- Stjórnarfundur 16. janúar 2008
- Stjórnarfundur/símafundur 6. febrúar 2008

Fundargerðir 2007
- Símafundur stjórnar 27. janúar 2007
- Símafundur stjórnar 28. febrúar 2007
- Símafundur stjórnar 14. mars 2007
- Símafundur stjórnar 18. apríl 2007
- Símafundur stjórnar 9. nóvember 2007

Fundargerðir 2006
- Aðalfundargerð 2006

Fundargerðir 2005
- Aðalfundur 2005

Fundargerðir 2004
- Símafundur 19. janúar
- Símafundur 17. april
- Stjórnarfundur 11. nóvember
- Fundur í félagsmálaráðuneyti 12. nóvember
- Aðalfundur 3. desember



 

 Leit á vef
 
Sameiginlegur vefur
 

Athyglisverðir tenglar

dkBúbót handbók

Eyðublöð

Samningar

Forrit fyrir bændur

Greiðslumark

Lög og reglugerðir

Tölur og gjaldskrár

Útgefið efni

Þéttbýlið og sveitin